Foreldrahúsiđ, Vímulaus ćska og nokkur kraftaverk

Ţađ hefur veriđ yfirvofandi um nokkurt skeiđ ađ Vímulaus ćska missti Foreldrahúsiđ góđa, sem hefur veriđ starfrćkt í allmörg ár. Ţegar ég fletti dagblöđunum í dag, í smá andleysiskasti, sá ég ađ ţetta er ađ bresta á. Ţannig ađ: Ef ţiđ ţekkiđ eitthvađ til starfsemi Vímulausrar ćsku, ţá endilega reyniđ ađ finna gott húsnćđi undir starfsemi Foreldrahússins, ţiđ vitiđ ţá vćntanlega hversu ótrúlega mikils virđi hún er fyrir fíkla á batavegi, fjölskyldur allra fíkla og í fyrirbyggjandi starfi. Ef ţiđ ţekkiđ ekki til starfsemi samtakanna ţá hvet ég ykkur til ađ kynna ykkur hana. Ţarna er nefnilega veriđ ađ vinna alveg ótrúlegt starf, fyrir lítiđ fé, međ mikla reynslu og sérţekkingu í farteskinu og ekki alltaf veriđ ađ velja sér auđveldustu eđa ,,vinsćlustu" málin, heldur ţau sem brýnast er ađ bćta úr.

Ef nógu margir eru tilbúnir ađ leggja málinu liđ ţá held ég ađ viđ skuldum ţví góđa fólki sem starfar í Foreldrahúsinu eitt lítiđ kraftaverk og ţađ sé hćgt ađ finna nýtt og betra Foreldrahús og fjármagna leigu á ţví. Ţau eru ekki svo fá kraftaverkin sem hafa unnist fyrir tilstilli starfsfólks, sjálfbođaliđa og sérfrćđinga Foreldrahússins.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband