Sćtasta stelpan á ballinu - diskótexti óskast
29.5.2007 | 19:08
Eitt sinn leitađi ég til lesenda bloggsins ţegar ég datt niđur í texta á lagi (sem ég var ekki par hrifin af) og nú vantar mig enn ađ fletta upp í visku ykkar. Ţegar ég var ađ keyra í vinnuna í morgun ţá heyrđi ég ekki betur en ađ dúettinn ,,Ţú og ég" sé kominn međ nýtt diskólag um sćtustu stelpuna á ballinu. Látum ţađ nú vera ađ ţađ sé tilviljun ađ ţessi texti sér ađ koma fram núna, en ţegar ég heyrđi ađ textinn fór út í ţá sálma - rétt í ţann mund sem ég beygđi af Kringlumýrarbrautinni og í áttina ađ Valhöll - ađ til ađ ná í sćtustu stelpuna á ballinu hefđi blessađur drengurinn orđiđ ađ stíga ofan á tćrnar á rauđhćrđum náunga, sem einnig ćtlađi ađ nálgast hana, ţá fann ég fyrir ómótstćđilegri löngun til ađ sjá textann í heild.
Tilviljun? Já, ábyggilega, eđa ekki ... ;-) kannski er einhver textahöfundur ađ stríđa ţessu ágćta diskódúói, sem ég minnist alltaf međ hlýju frá ţví ég tók viđtal viđ ţau Helgu og Jóhann er ţau voru á hátindi frćgđar sinnar. Auk ţess skilst mér ađ Helga sé forfallin golfáhugakona (ţađ er kostur) og eigi meira ađ segja eiginmann sem einhverju sinni tók ađ sér ađ leiđrétta ljóta villu sem ég var ađ koma mér upp, ábyggilega mjög góđur golfkennari. Eins og glöggir lesendur sjá ţá gruna ég ţau ekki andartak um ađ hafa samiđ ţennan texta međ pólitískum áherslum, en hvađ veit ég?
Athugasemdir
HG 29.5.2007 kl. 19:56
Hlustađi á ţetta líka og sagđi viđ samstarfsfólkiđ, nú dettur manni bara Geir Haarde í hug
Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 29.5.2007 kl. 20:23
Stundum hafa ţeir rauđhćrđu betur!
Geir Haarde er ţađ ekki sá sem ţarf ađ láta sér nćgja ţađ nćstbesta?
HG 29.5.2007 kl. 20:51
Jú, en ţetta međ ađ stíga á tćrnar á hinum, ţađ gerđi mig hugsi, kannski gleymdi hann ţví hérna einu sinni ...
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.5.2007 kl. 20:59
Ég er reyndar nýbúinn ađ gera bćđi lag og texta um ţetta efni međ tilheyrandi viđlagi. Getur bara vel veriđ ađ ég setji lag og texta inn í bloggiđ mitt. Textinn er svona:
Kosningaballinu lokiđ var og menn héldu heim á leiđ
og hjúin Framsókn og harđi Geir rćddu lágt um ţađ sem beiđ.
En hún virtist samt eitthvađ miđur sín eins og hendir stundum hér
og hann bara´var alls ekki viss um ţađ ađ hún gćti gagnast sér.
:,: Gagnast sér, gagnast sér,
ađ hún gćti gagnast sér :,:
Ingibjörg sá ţetta og til hans Geirs ţarna ákaft blikkađi
og er hann ţađ sá, - hann í leyni til hennar höfđi nikkađi.
Á Framsókn hann gafst ţarna alveg upp, ţađ fýla, bölv og ragn,
og fékk sér ţá nćstbestu af ballinu sem ađ gerir sama gagn.
:,: Sama gagn, sama gagn.
Já, hún gerir sama gagn :,:
Ómar Ragnarsson, 29.5.2007 kl. 22:17
Ţessi frá ţér, Ómar, er náttúrulega ennţá betri ;-) - takk.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.5.2007 kl. 23:50
ljós steina
Steinunn Helga Sigurđardóttir, 30.5.2007 kl. 19:23