Ótrúlega mikil hægri stjórn á leiðinni?

Mér sýnist alveg lygilega mikil hægri stjórn í uppsiglingu. Þetta er ekki skemmtileg framtíðarsýn og ég óttast að nú vakni Evrópusambandsöflin í Sjálfstæðisflokknum af værum blundi og bindist samtökum við Samfylkinguna. Sé líka einkarekstur í algleymingi, ekki líst mér vel á að fara of mikið út á þá braut. Spyrjum að leikslokum varðandi stóriðjuna, ég spái því að það verði ekkert stóriðjustopp, því það eru harðir stóriðjusinnar innan Samfylkingarinnar og viðspyrna Illuga verður ekki beysin. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú deilum við skoðunum á hvar hættan liggur, reyndar ekki í fyrsta skipti!

Hrædd er ég um að ESB-aðdáendur skríði núna úr skúmaskotum, en þá reynir á andstæðingana í Sjálfstæðisflokknum. Þeir mega sín reyndar nokkurs, held ég og vona. 

Stóriðjan! Drottinn minn, ef Kristján Möller verður nú dressaður upp í ráðherra!  Gleymum ekki atkvæðagreiðslunni í borginni þegar Kárahnjúkavirkjun var á lokaundirbúningsstigi. Samfylkingin getur gefið út ýmsa bæklinga og kallað þá græna þetta er græna hitt, það breytir engu um atkvæðagreiðsluna í borginni eða hvað Samfylkingin hefur á prjónunum um að virkja í Skagafirði.

Og ekki nú úr vegi að rifja upp ræðu ISG á Alþingi um EES-samninginn. Ræðan sú átti lítið skilt við stefnu flokksins sem hún var fulltrúi fyrir á Alþingi.

HG 17.5.2007 kl. 20:59

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband