Ekki bara grćn ...

Af gefnu tilefni vil ég taka ţađ fram ađ ég er ekki bara grćn, heldur líka vinstri. Grćna slagsíđan hefur veriđ áberandi ađ undanförnu vegna ótal atburđa í samfélaginu sem hafa gefiđ tilefni til. Baráttan í Hafnarfirđi var ekki bara barátta fyrir hreinna umhverfi, heldur líka fyrir ţví ađ láta ekki auđmagn stórfyrirtćkja ráđa skođunum manna í krafti fjármagns og ţeirra taka sem ţau hafa á umhverfi sínu, fyrirtćkjum sem ţjónusta ţau og ţví ágćta fólki sem hjá ţeim vinnur. 

En ég hef stundum sagt ađ ég vćri meira vinstri en grćn, ekki vegna ţess ađ ég unni ekki umhverfinu, var alin upp sem eldheitur umhverfissinni og ćskuminningarnar eru barátta fyrir verndun Ţjórsárvera á sjöunda áratugnum. Hins vegar eru svo mörg réttlćtismál sem hafa veriđ borin uppi af vinstra fólki, barátta fyrir meiri jöfnuđi í samfélaginu, fyrir sjálfsögđum mannréttindum á borđ viđ atvinnuleysistryggingar, hćrri og jafnari laun, fyrir bćttum hag aldrađra og öryrkja, međan enginn hafđi áhuga á slíku, sem sagnfrćđingur get ég ekki annađ en horft á söguilegt hlutverk okkar vinstra fólksins međ ákveđinni ábyrgđartilfinningu. Í Kvennalistnum vorum viđ hver úr sinni áttinni, ég kom frá vinstri til liđs viđ konur alls stađar ađ úr samfélaginu, og ţegar hreyfingunni minni var stýrt í einn pólitískan farveg kaus ég ađ fara til baka ţangađ sem ég hafđi áđur veriđ, munađarlaus um hríđ, en ţegar VG var stofnađ, ţá var ég međ, ţetta var minn heimavöllur. Og ţar er ég enn, bćđi vinstri og grćn.  

Og svo er ég auđvitađ ansi bleik líka ...  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband