Flottir tónleikar í Fríkirkjunni - suðurríkjablús og Burt Bacharach

Tónleikar til styrktar Vímulausri æsku í Fríkirkjunni í kvöld voru óskaplega fallegir. Efnisskráin að mestu lágstemmd, fjöldi trúbadora og annarra söngvaskálda fluttu frumsamda tónlist og aðra vel valda tóna. Fyrir okkur sem hrífumst auðveldlega með góðri tónlist voru sveiflurnar miklar milli tára og taktfasts klapps sem minnti mest á stemmningu sem frekar hefði mátt vænta í svörtum suðurríkjamessum. Atriðin voru hvert öðru frábærara en alla leiðina heim hljómaði ,,You gotta move" sem er gamall blús sem ég þekkti fyrirfram aðallega frá Rolling Stones (sem aldrei eru betri en í blúsinum) og svo Hallelujah frá Helga Val trúbador, lag sem ég hef alltaf elskað frá því ég heyrði það fyrst með Cohen. Helgi Valur átti fleira skylt með John Cale útgáfunni, en fyrst og fremst var þetta hans eigin útgáfa. Þessi lög hljómuðu í huganum af því ég þekkti þau fyrir, en svo voru líka minna þekkt lög innan um sem ég gæti alveg hugsað mér að fá á heilann, frumsamin og jafnvel frumflutt. Gæti vel hugsað mér að heyra alla tónleikana aftur til að njóta enn betur. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ummm dejligt ! langt síðan ég hef farið á tónleika á Íslandi. Sennilega í kringum 2003 á Hornafirði. Þá fór ég á tvenna tónleika,annar var  með meistaranum Megasi og hinnvar með KK. Það var gaman. vinkona mín sem er dönsk var með mér og hún gekk út af tónleikunum með Megasi, fannst hann ekki góður, skildi heldur ekkert af því sem hann sagði. Hún var þó ánægð með KK því hann talaði af og til á dönski vegna þess að hún var þarna.

Steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.3.2007 kl. 15:15

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Minnir mig á annað svolítið dejligt líka. Þegar Fræbbblarnir voru að koma saman aftur þá spiluð þeir meðal annars í húsi í Kaupmannahöfn sem mig minnir að sé bara kallað Huset, á 4.-5. hæð, gengið inn úr porti í frábæran sal rétt fyrir neðan Strikið (nálægt áströlskum bar sem ég held mikið uppá). Þar vorum við nokkrir Íslendingar og svo Helle vinkona mín og hún sagði hugsandi þegar Valli fór að syngja: Já, það eru auðvitað 20 ár síðan þeir komu seinast saman, hmmmm. En ég var víst eitthvað fljót að leiðrétta hana og sagði: Nei, hann hefur alltaf sungið svona! 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10.3.2007 kl. 00:11

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband