Kvikmynd um Kjötborg, frábært framtak, hlakka til að sjá hana

Þótt það sé langt síðan ég bjó í vesturbænum, þá átti ég alltaf erfindi af og til í Kjötborg, og Gurrí vinkona mín bætti síðan upplýsingum við til að fylla í eyðurnar, þannig að mér fannst ég alltaf fylgjast með þeim áfram. Bara flott! Hlakka til að sjá þessa mynd.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það segi ég með þér, hlakka mikið til. Verst að ég flutti um það leyti sem byrjað var á myndinni ... annars hefði ég fengið aukahlutverk í henni, heheheh! Fékk samt mína Kjötborg hérna á Skaganum í formi Einarsbúðar, alla vega sama góða viðmótið hér.

Ég sakna Gunnars og Kristjáns þrátt fyrir að búa í himnaríki en kíki stundum til þeirra, a.m.k. á Þorláksmessu. 

Guðríður Haraldsdóttir, 15.5.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ég er ekki hissa á því að þú haldir tryggð við þá, og vel á minnst, ég hef heyrt þig nefna Einarsbúð nokkrum sinnum, ekki spurning.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.5.2008 kl. 20:55

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband