Stórkostlegur dagur: Ari mætti með bikar heim, gull fyrir fimmgang, 32 ára trúlofunarafmæli og ýmislegt fleira

Þetta er búið að vera rosalega góður dagur. Ari fagnaði 32 ára trúlofunarafmælinu okkar með því að vinna gull fyrir fimmgang á íþróttamóti Sóta og fékk líka fimmtu verðlaun í fjórgangi fyrir annan hest. Verðlaunamerin heitir Paradís og hinn heitir Jarpur, svo öllu sé haldið til haga. Bikarinn hans AraÞótt ég elti Ara á marga viðburði á vegum hestamannafélagsins þá var ég upptekin í dag og missti af herlegheitunum. Reyndar hef ég þá kenningu að Ara gangi alltaf betur þegar ég er fjarstödd, reynslan hefur sýnt það, en samt kem ég með stundum, það er svo gaman. Í kvöld er einmitt afmæli hjá félögum Ara í hestabransanum þannig að við eigum eftir að fagna frameftir kvöldi.

Við Óli fórum á málþing til heiðurs Oddi Benediktssyni, hittum fullt af skemmtilegu fólki og hlustuðum á rosalega góða fyrirlesara, sem reyndar hittu misvel í mark eftir því sem áhugasviðið var. Við tölvunördarnir skemmtum okkur rosalega vel en þeir sem mættu aðallega vegna þess að þeir eru vinir Odds annars staðar frá eða úr fjölskyldunni skemmtu sér misvel yfir hugbúnaðarfyrirlestrunum, skrýtið! Fín stemmning. Tók líka í mig kjark og lét Ebbu Þóru sem er leiðbeinandi minn í lokaverkefninu fá handritið á því stigi sem það er nú, hef verið að ýta því á undan mér óralengi en fann smá trikk til að gera það, prentaði út eintak og lét hana fá af því ég vissi að ég myndi hitta hana í dag. Það er svo miklu auðveldara að bíða aðeins með að senda uppkastið í tölvupósti, það þarf alltaf að laga það smávegis í viðbót. 

Svo hitti ég Grétu, gamla skólasystur úr MR, í Samkaupum, við eigum bráðum stúdentaafmæli en það hefur eitthvað skolast til að boða okkur. Fann samt á vefsíðunni okkar www.mr72.is hvenær þetta stúdentaafmæli á að vera, ætla sko ekki að missa af því! Frábær dagur í alla staði og engan veginn búinn. Nú er bara að rölta út í Vesturtún, mundi auðvitað ekkert eftir afmælinu, þannig að við Óli versluðum vel í matinn í Samkaupum, hann hefur þá alla vega nóg að snæða í kvöld og við öll um helgina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki í hverri viku sem svona góður dagur skýtur upp kollinum. Fyrst hamingjuóskir til Ara með verðlaunin (ekki má gleyma þeim Paradísi og Jarpi - þetta er náttúrlega samstarfsverkefni manns og hests). Innilega til hamingju bæði tvö með trúlofunarafmælið. Ja, svo er náttúrlega 35 ára stúdentsafmælið þitt. Er það ekki 17. júní? Útskrifaði MR ekki alltaf á þann 17. júní á þessum árum? Síðast en ekki síst þá sendi ég sjálfri mér innilegar hamingjuóskir því ég kláraði prófin í dag.  

Helga 19.5.2007 kl. 20:50

2 identicon

Til hamingju nafna með 1)ykkur Ara og svo 2)Ara og hestinn og svo 3) hestinn og svo 4)stúdentsafmælið - vá - þetta hlýtur að kalla á 4ra daga veislu að minnsta kosti

Anna Ólafsdóttir (anno) 19.5.2007 kl. 21:09

3 identicon

Elsku mamma og pabbi.

Innilega til hamingju með daginn ástirnar mínar...

Svo fær pabbi alveg extra knús fyrir dugnað á hestamannamótinu.

En og aftur til hamingju með frábæran dag ástirnar mínar.... og skemmtið ykkur vel...

Jóhanna 19.5.2007 kl. 21:52

4 identicon

Til hamingju Ari!  Hamingju óskir Anna og Ari!  Til hamingju Paradís og Jarpur!  Til hamingju Anna!

Nina 19.5.2007 kl. 23:03

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk allar, við enduðum daginn í hestamannafmæli og það verður að segjast að hestamenn kunna að samfagna af einlægni. Mikið yndislegt kvöld að loknum þessum indæla degi.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.5.2007 kl. 23:07

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, og til hamingju, Helga, með áfangann.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.5.2007 kl. 23:09

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært með 32 ára trúlofunarafmæli, til hamingju með það og allt hitt.

ljós til þín kæra anna.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2007 kl. 23:19

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband