Afmælismálþing og smá vinna um helgina

Vinnan mín er þess eðlis að hún kemur í svolitlum skorpum, aðallega fer kúrfan í toppa en minna bólar á léttum dögum, sem er svo sem allt í lagi af því ég er ekkert yfir mig hrifin af iðjuleysi í vinnu. Venjulega reyni ég að hafa vinnuna ekki með mér heim, enum sjö leytið í dag var ég bara orðin of þreytt til að halda áfram svo það er lítil mappa af lljómandi skemmtilegu verkefni í töskunni minni og á það verður kíkt þegar andinn kemur yfir mig. Annars ætla ég á málþing til heiðurs Oddi Benediktssyni prófessor í tölvunarfræði á morgun. Hlakka til, Oddur á brautryðjendastarf að baki í tölvunarfræði á Íslandi og svo var hann ágætur kennari í þeim eina og hálfa kúrsi sem ég tók hjá honum, einkum skemmtilegur í kúrsinum: Gæðastjórnun í hugbúnaðargerð, sem var mjög spennandi. Langaði að vera búin að vinna aðeins meira í lokaverkefninu mínu áður en ég hitti kennarana mína alla, það er svo grátlega lítið sem ég á eftir í að það sé á skemmtilegu stigi. Vona að ég sleppi eitthvað í það um helgina.

Hef ábyggilega sagt eitthvað um það í blogginu fyrir einhverjum vikum að ég tryði á líf eftir kosningar. Ekki hef ég nú beinlínis sýnt það í framkvæmd, upptekin af pólitíkinn þar til kannski í dag. Hef þó rétt lufsast á eitt leikrit og svo hrunið fyrir framan sjónvarpið trekk í trekk og fengið mér rúnt á göngubretti, sem er mikil heilsubót, þótt það sé enn betra að rölta úti við. En kuldaskræfan sem þolir heldur ekki rigningu nema hún sé yfir 17 stiga heit, kann alveg að meta innigöngutúra líka. 

Vona sannarlega að sumarið komi þetta árið.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sumarið kom í Kópavoginn í dag. Ekkert mál að senda þér smá.

HG 19.5.2007 kl. 02:38

2 identicon

Nú langar mig nafna mín voðalega mikið að biðja þig um nánari lýsingu á kostum og göllum þess að vera með svona bretti heima. Er svolítið veik fyrir hugmyndinni

Anna Ólafsdóttir (anno) 19.5.2007 kl. 14:52

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Kostir: Göngutúr í hvaða veðri sem er, þægilegt með sjóvarpi og enn betra með útvarpi, gott að hlusta á þætti í tölvunni sem maður missti af. Svo eru mælingarnar þægilegar, keyrir mann áfram að klára alla vega 10 mínútur, og þá á maður bara smávegis eftir upp í 1 km, og þá á maður bara smá eftir upp í 15 mínúturnar og þannig koll af kolli þar til stutt er upp í 100 kalóríurnar ... allt telur. Svo er svo þægilegt að svitna heima og geta skellt sér beint í bað á eftir. 

Gallar: Talsvert plássfrekt og ekki beinlínis í stíl við önnur húsgögn í stofunni, en snyrtilegt, vissulega, og ekkert ljótt.  Verðið var mikil fyrirstaða lengi vel, en við sjáum ekki eftir fjárfestingunni. Vildi svo heppilega til að ég þurfti nauðsynlega á því að halda að ganga á hverjum degi og sem yfirlýst kuldaskræfa dugði kraftgallinn ekki til að draga mig út með reglubundnum hætti. Reyndi ,,mall-walking" eins og gamla fólkið í Ameríku, en það er allt of dýrt, maður getur alltaf séð eitthvað spennandi í Kringlunni og Smáralind. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.5.2007 kl. 18:48

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband