Varúð, ríkisstjórin gæti haldið velli

Ríkisstjórnin gæti haldið velli, samkvæmt nýjustu könnunum. Yfirleitt með minnsta mögulegum meiri hluta, en samt, hvað gera menn ekki til að halda í stólana sína. Magnús Jónsson ráðherra frá Mel (Sjálfstæðismaður) sagði einhverju sinni að það væri erfitt að fá menn til að segja skilið við stólana sína, ,,Þeim þykir svo vænt um þá!"

Og þetta getur gerst:

  • Þrátt fyrir að VG, aðalandspyrnuflokkur ríkisstjórnarinnar, sé með blússandi fylgi.
  • Þrátt fyrir að stefnumál ríkisstjórnarinnar hafi fengið falleinkun, eitt af öðru.
  • Þrátt fyrir að hagur aldraðra og öryrkja sé að dragast langt aftur úr kjörum annarra.
  • Þrátt fyrir að ofurlaun séu búin að misbjóða siðgæðisvitund flestra.
  • Þrátt fyrir óafturkræf  umhverfisspjöll í tíð þessarar ríkisstjórnar.

Á góðum degi gæti ríkisstjórnin engu að síður fallið. En við megum ekki láta eintóma heppni ráða. Ef VG verður ótvíræður sigurvegari kosninganna verður erfitt að ganga framhjá þeirri staðreynd þegar stjórnarmyndunarumboðinu verður úthlutað. Þaö er eina færa leiðin, og bara býsna góð líka.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert ágæt! Farin að gefa út viðvörunarspár!

HG 29.4.2007 kl. 20:17

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, þetta er svona sambland af afkomuviðvörun og hamfaraspá.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.4.2007 kl. 23:22

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Einmitt sem ég var að hugsa um í morgun, framsókn með 4 þingmenn og íhaldið 26.  Og aðal vangaveltur mínar voru um það hvort þá yrðu 4 ráðherrar frá framsókn af þeirra alkunnu háttvísi?

Ester Sveinbjarnardóttir, 29.4.2007 kl. 23:50

4 identicon

26 + 4 = minnihluti! Vá, það lítur út fyrir að Bessastaðabóndinn fái að ráða einhverju! Eða hvað, kannski verður hann upptekinn þann 13. maí við skyldustörf á Indlandi?  Jæja, það verða þá staðgenglarnir.

HG 30.4.2007 kl. 01:03

5 identicon

held að Framsókn bæti við sig og að

verði 8 Þingm

leeds 30.4.2007 kl. 09:58

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úff ekki skella á mig martröð þegar sólin skín!

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 18:01

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sólin skín og vonandi enn glaðar eftir 12. maí, en það er nauðsynlegt að nefna þetta!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.4.2007 kl. 18:08

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband