Ótrúlegur endasprettur, ekki í X-factor heldur Gettu betur

Vil ekki binda mig of mikið við sjónvarpið, nóg að vera föst í 24 og næstum í Prison Break. Þess vegna fylgist ég helst ekki með spurningakeppnum í sjónvarpi, bara í útvarpi. Veit samt að MR vann í gær, gamli skólinn minn, en endasprettur MH og MK í kvöld var með ólíkindum og ekki hægt annað en fagna með MK. Lofa ekki að horfa á úrslitin, en gæti hent. Og svo sjáum við bráðum hvort atkvæðin mín hafa bjargað Guðbjörgu eða ekki Cool

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með gamla skólann.  Ég sat eins og herptur handavinnupoki þegar úrslit lágu fyrir.  Tvær af þremur dætrum mínar voru öflugir MH-ingar og ég varð illa skúffuð og kvað samstundis uppúr með að þetta hefði verið tilviljanakennt glópalán hjá MK.  Þau eru súr sagði refurinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.3.2007 kl. 23:28

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ææ, þau stóðu sig rosalega vel líka!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.3.2007 kl. 00:54

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband