Þarfagreining síma og stórkornóttar myndir

Vinnufélagar mínir hlógu þegar ég var að þarfagreina næsta símann sem ég ætlaði að kaupa, mig vantaði síma með meiri hljómgæðum og aðdráttarlinsu. Þeir gerðu enga athugasemd við kostina sem ég valdi fyrir símann, en hins vegar fannst þeim fyndið að ég skyldi þarfagreina símann. Tek fram að ég vinn hjá hugbúnaðarfyrirtæki.

Svo fékk ég mér nýjan síma, með aðdráttarlinsu og skárri hljómgæðum, sem er gott fyrir manneskju sem hlustaði á Magna gegnum símann syngja uppáhaldslagið mitt til margra ára, Creep. En þetta með aðdráttarlinsuna er blendin gleði, myndirnar verða ansi stórkornóttar í nýju símamyndavélinni, þrátt fyrir það er þetta mikill nytjahlutur og ég tek líklega fleiri myndir á símann en á myndavélina okkar fjölskyldunnar. Mig dreymir vissulega um tæknin verði enn skemmtilegri - svona í anda Ubiquitous computing, ef einhver veit hvað það fyrirbæri er - en á móti kemur að mér er á móti skapi að eyða einhverri formúu í græjur og þess vegna á ég bara grófkornaðan síma. Tilefni þessa pistils er að nú er ég búin að setja inn í nokkrar myndir frá Cambridge ferðinni fyrir nokkrum dögum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Hvenær ætli maður geti fengið síma með skóbursta og rafmagnsrakvél, svo dæmi séu tekin? Með svipuðu áframhaldi hlýtur að koma að því.

Hlynur Þór Magnússon, 24.3.2007 kl. 08:31

2 identicon

Ég er samt alsæl með hvað þú ert búin að vera dugleg að taka myndir... Vonandi er nú eitthvað af þeim á nýju fínu myndavélina...

Haltu áfram að vera svona dugleg að taka myndir og setja þær inn...

Jóhanna 24.3.2007 kl. 15:37

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ég er opin fyrir nákvæmlega öllu nema tannbursta. Vil hafa hann afmarkaðan og helgaðan sínu hlutverki. Varðandi myndirnar þá eru þær nýjustu (Loftorka og Kanarí) allar ái nýju fínu myndavélina, sem kann ekkert nema að taka myndir (jú, og smá vídeó, smá hljóðfæla ... ).

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.3.2007 kl. 16:20

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég geri svo litlar kröfur til símans míns ... vil geta hringt og sent sms og móttekið líka. Símaskrá er fín og vekjari. Búið! Vildi að ég væri svolítið meiri tæknikerling! Hhehehe

Guðríður Haraldsdóttir, 24.3.2007 kl. 19:06

5 identicon

Tækniframfarir eru expónentíal fall, en notagildið er natúral lógaritmískt fall. Ef við leggjum þau saman fáum við línulegt fall - þannig að þetta er allt í himnalagi .

Guðmundur G. Hreiðarsson 24.3.2007 kl. 20:00

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband