Gospel söngur, afmæli Ingu Birnu og ekki gleyma 1. des. hátíð Heimssýnar í Salnum klukkan 17

Ljúft og gott kvöld í faðmi vina. Inga Birna dóttir vina okkar Ása og Önnu er orðin sextán ára og hélt uppá afmælið með því að syngja með gospelkórnum sínum, sem kenndur er við sjálfan Vídalín í Vídalínskirkju í Garðabæ. Flottir tónleikar - ekki síst verk eftir Maríu Magnúsdóttur kórstjóra, frá Dysjum heyrist mér (ætli hún sé dóttir Magga Björns, eða átti Guðmann á Dysjum son sem heitir Magnús, gæti mjög vel verið) en Inga Birna ... fínn kór sem hún er í! Og á eftir var boðið til afmælisveislu í Brekkuskógunum og kræsingarnar voru þvílíkar að ég neyddist til að setja diskinn minn í vaskinn eftir tvær ferðir að borðinu, og valdi þó nóg af hollustu með hnallþórunum. Sólu kippir alvarlega í kynið og þeim öðrum sem bera ábyrgð á veislunni!

Svo bendi ég á næstu bloggfærslu á undan og minni á 1. des fundinn í Salnum í Kópgavogi klukkan 17, á vegum Heimssýnar, frekari upplýsingar hér að undan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Geir Símonarson

Jú, María Magnúsdóttir er dóttir Magnúsar B. Björnssonar prests og Guðrúnar Dóru Guðmannsdóttur, dóttur Guðmanns á Dysjum :)

Torfi Geir Símonarson, 1.12.2008 kl. 15:54

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk fyrir upplýsingarnar, Torfi, mig grunaði að svarið leyndist einhvers staðar meðal sambloggara minna og það er sannarlega gaman að Magnús Björn, gamli bekkjarbróðir minn, sem ég vissi að giftist dóttur Guðmanns á Dysjum, skuli eiga svona hæfileikaríka dóttur.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.12.2008 kl. 19:54

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband