Veruleikakast

Fluginu seinkar og heima er kafald skilst m'er. Gengið með versta m'oti 'i dag, sem er bara vont/gott, engin ástæða til eyðslusemi við n'uverandi aðstæður en hins vegar hangir fleira 'a sp'ytunni sem er verra. En sem sagt vonandi 'a heimleið samt!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óttalegur ruglingur er þetta... Hér er blíðskaparveður þótt nokkrar þakplötur séu í labbitúr og sjórinn svolítið áttavilltur fyrir norðan og vilist upp á land. Láttu ekki veðurfréttir hrekja þig frá því að koma heim og tala við mig um heimsmálin . Gengið á krónunni hefur verið það sama dögum saman: Aldrei stöðugra! Er það ekki það sem margir hafa beðið um: Stöðugleika og stjórnfestu! Já, hér er líka stjórnfesta í lagi: Enginn sem hugsanlega hefur staðið sig illa í vinnunni ætlar að hreyfa sig: Nei, nei, fólk situr sem fastast í sætunum: Það kallar maður nú stöðugleika.  Ef þú verður "jafnheppin" og flugfarþegar í gær þá geturðu hallað þér aftur í sætinu og látið þig hlakka til hvort vélin lendir í Keflavík, á Akureyri eða Egilsstöðum ! Þannig að í stöðugleikanum er engu að síður nokkuð um fjölbreytni.

Nafn? Æi, þú veist það nú! 25.10.2008 kl. 03:01

2 identicon

Því miður ertu sennilega steinsofandi núna, ég þarf að beita mig hörðu til þess að rífa ekki upp símann. Fréttir af dvölinni í Elfugarði eru bráðnauðsynlegar núna, eitthvað annað að hugsa um en yfirvofandi gjaldþrot og hungurverkir.

Núna eru aðgerðirnar gegn Íslandi farnar að koma í bakið á Bretum sjálfum. Alls kyns fjármálakóngar í City farnir að spyrja sig hvort þeir eigi líka von á hryðjuverkalögum í bakið þegar illa árar, sem er einmitt raunveruleikinn núna þessa dagana. Hvort betra væri að flytja sig um set þangað sem menn beita sér með meiri yfirvegun í fjármálum. Kannski verður Ísland litla þúfan sem velti stóra hlassinu, þannig að Stóra-Bretland hverfur undir í tilkomumiklum rykmekki.

Íslendingar líta á þetta eins og náttúruhamfarir sem þeir þekkja svo vel, áfall í fyrstu en svo er bara að bíta á jaxlinn og bretta upp ermarnar.

Borghildur Anna 25.10.2008 kl. 12:18

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sakna þess ekki að hafa ekki lent í nýjasta veðrinu okkar. Og rétt til getið, þrátt fyrir að kreppan hafi valdið því að hver farþegi hafi haft þrjú sæti í flugvélinni og þrjá afgreiðslumenn fyrir sig í fríhöfninni, þá fór ég reyndar að sofa uppúr hádegi þegar ég var búin að tala við ættliðina á undan og eftir mér. Er að vakna, fer sjálfsagt að vakna í ,,alvöru" hvað á hverju.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.10.2008 kl. 18:08

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband