"Battle of the Davids" og Jósep segir ...

American Idol á lokaspretti og eins og Simon Cowell spáði verður úrslitaþátturinn "Battle of the Davids" enginn Golíat heldur bara tveir Davíðar. Veit varla með hvorum ég held meira. Cook hefur unnið á, á því leikur enginn vafi.

Einn skemmtilegasti leikurinn sem við fórum í var Jósep segir. Býst við að flestir þekki hann, einn skipar fyrir hvað hinir eiga að gera, og ef hann segir: ,,Jósep segir" á undan, þá á að hlýða, annars ekki. Á ensku heitir þessi leikur Simon says, og mér heyrist að það sé einmitt búið að hlýða því sem Simon (Cowell) segir hér með.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Erfitt að dæma á milli Davíðanna - ég spái þeim eldri sigri.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.5.2008 kl. 22:06

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Jamm, það er ósköp þægilegt að finnast þeir báðir góðir, varla hægt að verða ósátt við úrslitin.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.5.2008 kl. 22:44

3 Smámynd: Linda litla

Ég man eftir þesum leik síðan ég var barn og þá hét hann Símon segir.

Linda litla, 20.5.2008 kl. 00:05

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að Cook vinni, en auðvitað eru þeir báðir búnir að meka það.

Artchuleta er örlagakrútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 07:57

5 Smámynd: Púkinn

ég verð nú að viðurkenna það að ég horfi aðallega á þáttinn til að heya hvað Simon segir..... hvað um það - þetta kemur allt í ljós aá fimmtudaginn.

Púkinn, 20.5.2008 kl. 16:36

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Er beina útsendingin ekki á miðvikudag? Hmmm, kemur í ljós. Annars þarf að velja á milli Eurovison og Idol.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.5.2008 kl. 17:02

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband