Saga sem margir kattaeigendur geta lifað sig inn í

Smá framlag frá YouTube sem margir kattaeigendur geta eflaust skilið vel. Simbi okkar er alla vega grunaður um að lifa eftir þessum lífsreglum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

he he he núna getur hann farið inn og út eins og honum hentar.

Linda litla, 13.3.2008 kl. 14:56

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Simbi opnar reyndar glugga sjálfur en er svo frekar tregur að fara inn um gluggana sem hann hefur sjálfur opnað. Vill frekar fá þjónustu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 13.3.2008 kl. 16:11

3 Smámynd: Linda litla

Mínir kettir eru þannig, vilja bara fá endalausa þjónustu. Patti minn vill alltaf vera láta opna fyrir sig skápa, hann er algjör skápastrákur.

Linda litla, 13.3.2008 kl. 16:36

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sem betur fer er Simbi ekki orðinn skápaköttur, áttum einu sinni eina slíka sem átti fimm kettlinga á botni fataskápsins míns, fyrir löngu. Grámann okkar var hins vegar eitt sinn kominn inn í ísskáp, þannig að ég þakka bara fyrir á meðan Simbi heldur sig við dyr og glugga.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 13.3.2008 kl. 16:42

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ekki mínir !!!

Blessi þig

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 17:08

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Heppin!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 13.3.2008 kl. 18:06

7 identicon

Eitthvað kannast ég við sumt af þessu. Það er ekki laust við að maður sé látinn vita ef kisa vill komast út seint á kvöldin, ... sem þýðir ... að það þarf að kalla leeeeennnnngi á hana til að fá hana inn aftur. Ef maður gefst upp vaknar maður upp við vælið kl. 5 um morgun.  

Anna Ólafsdóttir (anno) 13.3.2008 kl. 21:15

8 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

haha, kettir eru nú bara yndislegir

Svala Erlendsdóttir, 15.3.2008 kl. 00:46

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband