Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 571310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Robert Downing Jr. er ótrúlega skemmtilegur leikari
23.2.2008 | 00:21
Datt óvænt ofan í fáránlega kvikmynd í sjónvarpinu, Kiss, Kiss, Bang, Bang með Robert Downing Jr. og undrast enn og aftur hvað þetta er skemmtilegur leikari, Val Kilmer var líka alveg æði og handritið ótrúlega skemmtilegt og reyndar mjög geggjað. Mæli með myndinni fyrir þá sem eru til í svolítið ,,yfir strikið" myndir og ekki spillti að horfa á þetta vandaða rugl með Nínu systur og Óla syni mínum sem bæði kunna að meta góðar myndir.
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 01:43 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Ég er ekkert lítið hrifin af Robert þessum. Hann er þvílíkur talent. Annars var ég að horfa í gærkvöldi á Val Kilmer leika Jim Morrison. Ótrúlega flottur í því hlutverki.
Anna Ólafsdóttir (anno) 23.2.2008 kl. 00:36
Úff já, ég elska hann í Doors myndinni, var einmitt að hugsa það þegar Nína systir var að segja mér að hún sá hann leika Hamlet í nútímaútgáfu í úti-Shakespeare leikhúsi. Og ,,To be or not to be" rullan var sem sagt í leðurbuxum og svolítið drafandi (af áfengisneyslu). Ábyggilega mjög spes og var víst mjög flott.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.2.2008 kl. 01:16
Hún var ágæt myndin, sá hana reyndar á sínum tíma í bíó.
Linda litla, 23.2.2008 kl. 01:29
Æ, æ, ég sá smáhluta af henni og var að hugsa um að setja á Stöð 2 plús ... en bókin hans Dean Koontz freistaði svo mikið. Myndin kemur örugglega á Bíórásina fljótlega og þá mun ég ekki missa af henni.
Guðríður Haraldsdóttir, 23.2.2008 kl. 13:00
Gurrí mín fylgstu endilega með henni á bíórásinni, hún er svolítið geggjuð! Við vorum einmitt að ræða það hér heima, Linda, að þessa mynd þarf maður eiginlega að sjá í sjónvarpi af því þá getur maður kommenterað jafnóðum. Reyndar er víst öskrað á tjaldið í New York, það var einmitt eitt af því sem var vitnað til í myndinni.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.2.2008 kl. 15:56