Meira frá Kanarí - fréttapistill

Komið að fréttapistli héðan frá Kanarí. Hagnýtar upplýsingar fyrir áhugasama. Hér hefur verið mikil blíða síðan við komum en nú eru skúrir en hlýtt. Allt í lagi að hvíla húðina aðeins. Hér á Playa del Inglés er karnivalið að byrja, mikið af skrautbúnu fólki og skemmtiatriðum út um allt. Stemmning en troðningur. Rannveig frænka mín, sem býr hér árið um kring var með okkur í minigolfinu í gær og sigraði okkur Ingu, ég lenti í botnsætinu eftir sigur seinustu daga og verð greinilega að taka mig á. Borðuðum góðan heimilismat (með íslenskrar fréttir af rokinu í sjónvarpinu, bara fyndið fyrst allt fór vel) á litlum stað í kjallaranum á hótelinu hennar, hún er búin að festa sér íbúð hér og blómstrar.

Fréttir ú mannlífinu:

Paddy Murphy barinn í hjarta Playa del Inglés er kominn með nýjan gítarista sem syngur alveg ljómandi vel líka (Simon), en er enn með skrambans karókííð líka. Sumir skilja ekki að sumir eiga ekki að syngja. Reyndar er bareigandinn, sem er eins og Barbapabbi í laginu (sjá mynd), Bareigandi kaupir bar til að syngja karókí nokkuð glúrinn í karókíinu en sama verður ekki um marga aðra sagt.

Endurbyggingu Sunwing er lokið og heitir nú Sunprime. Hefur tekist vel til.

Karnivalìð verður í fullum gangi allan tímann sem við verðum hér og mikið um skrautsýningar.

Góðu dúkabúðinni í Gran Capparal hefur verið lokað og eigandinn er fluttur til Barcelona. Verst að við rákumst ekki á hann í nóvember, fínir dúkar, en hér er mikið um slíkt (reyndar allt Made in China, en jafn góðìr).

 

Elsa McTaggard, stórsnillingur (sjá mynd) á Fria Tuck, Elsa syngur  eins og engillskrapp hingað til Kanarí í vikufrí um daginn. Hún var umsvifalaust klófest og var að syngja og spila allan tímann sem hún var í fríi. Elsa á íslenska mágkonu og hefur áhuga á að koma í sumar til Íslands og ég vona að hún komi.

Hér er staddur á Kanarí góður vinur minn, Sigurður Hreiðar (bloggari með meiru) ásamt sinni góðu konu Álfheiði og vonandi hittum við á að heilsa upp á mannskapinn meðan við erum hér.

Við sátum í rólegheitum á Gemini, utan við ys og at karnivalsins í gær eftir snæðinginn og virtum fyrir okkur mannlífið. Stórbrotin kona vakti athygli mína, á eftir að hlaða mynd af henni inn. Tignarlegt hvítt hár vìð hvíta blúnduheklaða blússu. ,,Ertu viss um að hún SÉ kona," sagì sessunautur minn, Binna. Hmmm, skóstærð 46 og metersbreitt bakìð bendir til að ég hafi haft rangt fyrir mér. En flott var hún og ekki gott að segja hvers vegna hún var ekki frekar á karnivalinu. Við erum enn að velta ffyrir okkur hvort konan við hliðina hafi verið fyrrverandi eða núverandi eiginkona eða bara vinkona. Ekki eins og okkur komi málið nokkurn skapaðan hlut við. En gaman að fylgjast með mannlífinu hér um slóðir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viðurkenni smá öfund  en þess fyrir utan samgleðst ég þér innilega að vera á þessum suðrænu slóðum. Ég hreinlega elska Kanarí og hef hugsað mér að dvelja þar á hverju ári þegar ég kemst á þann aldur ( og starfsaldur) að geta sest í helgan stein.

Anna Ólafsdóttir (anno) 9.2.2008 kl. 14:33

2 Smámynd: Linda litla

ohhhhhh... vildi að ég væri þarna á Kanarí með ykkur í hitanum. Hérna er annað hvort klikkað rok og rigning eins og í gær, en í dag er bara endalaus snjókoma. Allur snjórinn sem hvarf í rigningu í gær, kom aftur í dag. Þetta er alveg óþolandi þertta íslenska veðurfar.

Hafið það gott þarna úti og njótið þess að vera til.

Kv. frá ÍSlandi.

Linda litla, 9.2.2008 kl. 17:18

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Knús og kveðjur!

Guðríður Haraldsdóttir, 9.2.2008 kl. 18:15

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, takk, vildi helst hafa ykkur allar her. A Kanari hefur madur nefnilega TIMA til ad sinna vinum sinum. Og knus til baka, Gurri min. Endurtek: Her eru nanast engin skorkvikindi!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10.2.2008 kl. 17:42

5 identicon

"Skóstærð 46" segirðu! Huhm, það er mjööööööög grunsamlegt!  Ertu enn að spæja?  

Helga 11.2.2008 kl. 09:54

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband