Sagnfræðisukk og stærðfræðispenna

Lífið snýst um sagnfræðisukk og stærðfræðispennu þessa dagana. Ég þarf að taka eitt sjúkrapróf (á laugardaginn) vegna pestarinnar fyrir jólin og finnst hálf fúlt að þurfa að láta trufla mig í þessu fína sagnfræðisukki sem ég er dottin í. Hver hefði trúað því að nýliðin fortíð væri svona spennandi? Allt sem ég er að safna efni í er svo spennandi, þótt úrvinnslustigið sé venjulega enn skemmtilegra. Kosturinn við að skrifa um tiltölulega nýliðna sögu, eins og ég er að fara að gera, er að það er til svo rosalega mikið af heimildum og yfirleitt mjög gott myndefni. Það er líka ögrandi að takmarka sig, reyna að sjá stóru línurnar.

En á vissan hátt er gott að grípa í stærðfræðina á milli, það er ekki laust við að það agi hugann aðeins, og slíkt er auðvitað alltaf gott. Þetta er allt gott hvað með öðru. Á meðan á þessari törn stendur ætla ég að skera niður allt annað, svo sem félagslíf og sjónvarpsáhorf (lítil fórn), ætli ég horfi á mikið meira en Stephen Fry í kvöld, Grays Anatomy á miðvikudag og Útsvar á föstudag. Ef ég verð rosa dugleg fæ ég House í verðlaun á fimmtudaginn, það væri auðvitað gaman. Bloggvirkni fer eftir pásuþörf og fleiru, ótímabært að hafa skoðun á því máli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sem betur fer eru til allnokkur blúslög með Stones, sem ég verð alla vega aldrei leið á.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.1.2008 kl. 22:37

2 identicon

Horfði hugfangin á seinni hlutann af þættinum hans Steven. Þvílíkt flott nálgun hjá honum á þetta efni. Gangi þér allt í haginn í prófinu.

Anna Ólafsdóttir (anno) 14.1.2008 kl. 23:27

3 Smámynd: Linda litla

Gangi þér vel í prófinu á laugardaginn.

Linda litla, 14.1.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, takk.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.1.2008 kl. 08:43

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband