Enn með fríið í blóðinu

Mikið er gott að taka sér smá sumarfrí. Þótt ég sé enn á því að sumarfrí á veturna sé það besta sem hægt er að gera til að stytta veturinn og fækka hálkudögunum, þá er líka hressandi að eiga sér smá frí á fallegu sumri. Ferðin til Svíþjóðar og Finnlands var ljúf og góð og við auðvitað ekkert smá heppin með veður. Riging á undan og eftir en ekkert nema blíðan meðan við vorum þarna. Og sumarið hérna fyrir sunnan hefur líka verið svo fínt og gott. Búin að bæta við myndum og á eflaust eftir að tína nokkrar í viðbót inn í albúmið sem merkt er sumrinu 2007. En hér er svona eitthvað til að ylja sér við:

Nýkomin til Sigga og Cillu í á Svartsö í skerjagarðinum sænska

 

 

 

 

 

 

 

 

Ari Siggi og Cilla fyrir utan húsið þeirra á Svartsö

Flotta Línu langsokks-húsið sem Siggi smiðaði fyrir stelpurnar. Skil ekkert á því hvers vegna Ikea vill ekki fjöldaframleiða það.

 

 

 

 

 

 

 

 

Siggi smíðaði þetta fína Línu Langsokkshús fyrir stelpurnar þeirra

Komið að landi í Suomenlinna eða Sveaborg

 

 

 

 

 

 

 

 

Komið að landi í Sveaborg við Helsinki 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Olav hefur ábyggilega verið flottur sofandi við píanóið!  En blessaður karlinn er heyrnarskertur (eða er það ekki rétt hjá mér að þetta er sami maðurinn og svaf svo sætt á fundinum í fyrra sumar) og það er ábyggilega mjög svæfandi að sjá varir á fólki hreyfast, reyna að lesa af vörum og heyra ekkert nema skvaldur. En hvort heldur er vakandi eða sofandi þá er hann ægilegt krútt.

Annars já, þá er ég sammála þér um að "sumarfrí" á veturna eru góð og svo er þetta kórréttur tími til að ylja sér við fallegar sumarmyndir meðan haustmyrkrið læðist yfir.

Helga 16.8.2007 kl. 22:28

2 identicon

Skoðaði myndasafnið - skemmtilegar myndir  Ég hef skoðað kirkjuna sem sprengd var inn í bergið, ofboðslega sem mér fannst hún stórkostleg, á nokkrar myndir sem ég tók inni í henni, aldrei að vita nema ég setji þær á bloggið mitt einhvern tíma. Svo fór ég líka og skoðaði gömlu kirkjuna (minnir að hún sé orthodox-kirkja) og það var mjög sérstök stund. Ég hef komið þrisvar til Finnlands og finnst það frábært land að heimsækja.

Anna Ólafsdóttir (anno) 16.8.2007 kl. 22:38

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Olov hefur sofið á ýmsum ráðstefnum og meðal annars þeirri sem við sóttum í fyrra. Hann vakir á nóttunni og ég náði honum tvisvar frekar vel vakandi. Hann er stórfínn.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.8.2007 kl. 22:46

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Allar kirkjunar í Helsinki virðast áhugaverðar. Gæti alveg hugsað mér að koma þarna aftur, en áður hafði ég bara farið til Turku, sem er reyndar óskaplega falleg borg.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.8.2007 kl. 22:47

5 Smámynd: Bogi Jónsson

Mikið er ég sammála þér sveitungi að taka "sumarfrí" í dimmasta skammdeginu er vítamínsprauta fyrir mig.

kv Bogi

Bogi Jónsson, 18.8.2007 kl. 11:28

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband