Allir sammála um að orðið ljósmóðir sé fegursta orð íslenskrar tungu? Eða er það kannski dalalæða? Eða kærleikur? Eitthvert annað orð? Þeir sem vilja hafa áhrif á niðurstöðuna þurfa að láta í sér heyra.

Allir sammála um að orðið ljósmóðir sé fegursta orð íslenskrar tungu? Eða er það kannski dalalæða? Eða kærleikur? Eitthvert annað orð? Þeir sem vilja hafa áhrif á niðurstöðuna þurfa að láta í sér heyra. Ennþá gæti eitthvert annað orð skotist upp á stjörnuhimininn, andvari sýnir smá tilburði og orðið von er fremst meðal jafningja í annarri deild. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er fullkomlega sátt við orðið "ljósmóðir".  Elsta atvinnugrein kvenna, hvorki meira né minna, í staðinn fyrir sumar aðrar starfsgreinar sem fólk vill meina að hafa markað upphaf útivinnandi kvenna. 

Ég er svolítið upptekin af orðinu "orð" og hefði viljað sjá það ofar.  Stendur ekki einhversstaðar: "í upphafi var orðið", byrjun alls en vonandi ekki endir.

Takk fyrir stórskemmtilegar færslur um orð.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2007 kl. 09:44

2 identicon

Ég stend með dalalæðu. Rökin þau sömu og í færslunni minni í fyrradag.

Helga 17.7.2007 kl. 09:58

3 identicon

Mér var sagt af lærðum manni að orð sem hefðu í sér breiðan sérhljóða færu betur í fólk en önnur orð og að Í hljóðið væri best. Hann nefndi orðið líf sem dæmi um orð sem fólk kynni best við. Ég ætla að setja atvæði mitt við blómanafnið. Það vekur upp góðar minningar um móður mína.

Davíð Kristjánsson 17.7.2007 kl. 10:36

4 identicon

Hver gaf eiginlega bessaleyfi fyrir því að þessi kosning færi fram hér, er ekki svolítið gróft að ætla sér að sjá um svona upp á eigin spýtur? Einnig legg ég til að orðinu forstjóri verði bætt við í keppnina, það er jú elsta atvinnugrein karlmanna.

Sahælar 17.7.2007 kl. 11:03

5 Smámynd: Ragnheiður

Ég valdi frið, það er mitt uppáhald

Ragnheiður , 17.7.2007 kl. 11:24

6 identicon

Sælt veri fólkið, mér finnst nú að kaldavermsl sé alveg gífurlega fallegt orð, og svo er laungraður.

Með kveðju að norðan, þar sem sólinni finnst skemmtilegast að skína, Gudrun 

Gudrun Kloes 17.7.2007 kl. 13:52

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér sýnist forskot ljósmóður vera að aukast ef eitthvað er, þannig að það er nokkuð ljóst að sæmileg sátt er um orðið, en enn geta tíðindi orðið og allt getur breyst, séu nógu margir sáttir við það. Það hafa hins vegar mörg skemmtileg orð komið inn eftir að tilnefningum lauk og líka eftir að fyrir lá hvaða 12 orð væru vinsælust þessa dagana. Kannski að ég taki mér aftur bessaleyfi næsta ár eða þarnæsta, eða einhver annar, og haldi aðra sambærilega keppni. Hver veit? En þangað til sé ég mig sitja í grennd við kaldavermslin í friði og ró og sjá dalalæðuna smeygja sér inn túnin þar sem gleym-mér-ei vex á lítilli tó. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.7.2007 kl. 15:17

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Mér finnst kærleikur skemmtilegt og fallegt orð... hefur í sér eins og góð íslensk orð margfalda merkingu. Þá finnst mér líka orðið samfarir bara snilld. Ljósmóðir og dalalæða eru líka mjög fögur orð svo. Ég er líka veik fyrir orðunum völva og tölva. Tölva er flottasta nýyrðið að mínu mati. Þeyr er líka flott orð. Við erum svo lánsöm að eiga svona fallegt og ljóðrænt tungumál, takk fyrir þessa keppni:)

Birgitta Jónsdóttir, 17.7.2007 kl. 15:40

9 Smámynd: Ásta Gunnlaugsdóttir

Mér þykir orðið 'ljósstafur' afar fallegt. Svo er hluturinn líka mjög flottur.

Man um árið sat ég með vinkonu minni, sem er mjög fær í íslenskunni, í bíl og benti upp í himininn. "Sko! Lion King Ljós!" hrópaði ég.

"Ásta!" hreytti hún í mig, "Þetta eru ljósstafir!"

Ásta Gunnlaugsdóttir, 17.7.2007 kl. 15:43

10 identicon

Mér finnst orðið ljóð, vera fallegt og má koma hér fram að ósekju.

Eins orð sem að eru samsett við þetta orð. Eins og ljóðrænt, ljóðabók og ljóðabálkur.  Bálkur er líka afar fallegt orð og mjög íslenskt, ef það er hægt að segja það á annað borð.

En ég hef gaman af þessu og vildi sjá þetta á stórum skala. Fallegasta orð Íslands, þetta mætti vera árleg samkeppni á ársvísu. Fallegasta orð 2007 er...

Ég myndi sitja límdur við sjónvarpsskjáinn. 

Gústaf Hannibal 17.7.2007 kl. 16:36

11 identicon

Hvað með Íðilfagur?

Mér finnst það orð vera mjög íslenskt og fallegt.

Arna 17.7.2007 kl. 16:55

12 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Einu sinni fyrir langa löngu heyrði ég útlenda konu segja að orðið sjáaldur væri fallegasta orðið sem hún hefði heyrt.

Þóra Guðmundsdóttir, 17.7.2007 kl. 20:56

13 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Það gæti verið áhugavert að vita hvað útlendingum finnst, þeir hafa meiri abstrakt sýn á málið en við sem höfum verið samdauna því frá fæðingu. Til dæmis finnst mér asciugamano afskaplega hljómfagurt ítalskt orð - en svo þýðir það bara vesælt handklæði og ósennilegt að það myndi skora hátt hjá innfæddum Ítala Sjáaldur er ekki eins tilfinningaþrungið og ljósmóðir og auðvitað þurfti útlending til að benda á hve það er fallegt.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 17.7.2007 kl. 22:00

14 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Ég og dóttir mín erum sammála um að orðið æðruleysi sé fallegasta orðið sem er í huga okkar núna.

Þóra Sigurðardóttir, 17.7.2007 kl. 23:00

15 Smámynd: Kolbrún Kolbeinsdóttir

Áfram dalalæða!!  Kannski er það áralöng útlegð mín í Ameríku, en ég bara hálf klökknaði þegar ég las yfir listann þinn.  Þetta stórskemmtilega framtak þitt hefur sýnt mér enn og aftur fegurð íslenskrar tungu.  Kærar þakkir! 

Kolbrún Kolbeinsdóttir, 18.7.2007 kl. 01:01

16 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Orðið mjöll, er eitt það fegursta sem ég veit enda afskaplega gaman að láta orðið ríma við fjöll, öll þakin mjöll, hróp og köll í koti og höll.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.7.2007 kl. 01:21

17 identicon

Fyrirgefðu leiðinlegheitin,

En mér finnst einhvern veginn eins og hér sé verið að velja væmnasta orð íslenskrar tungu(? )

skúmur 18.7.2007 kl. 01:40

18 Smámynd: Kolgrima

Má velja mörg orð? blik, hrímfölur, hrynjandi, móðir, Heljarslóðarorrusta, vígfimur, fífa, margslunginn, tvíræður, vitar, niður, stirnir, tindrar, forviða, öldungis, ylur, fjölkyngi ....  svo fátt eitt sé nefnt! En ljósmóðir er ótrúlega bjart og fallegt orð.

Kolgrima, 18.7.2007 kl. 03:22

19 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Glæsileg orð sem bætast við á hverjum degi, spurning hvernig við nýtum þau í næstu umferð, hvenær sem hún verður? Umræðan sýnir einmitt þetta sem Kolbrún nefnir, að áhuginn á tungunni og fegurð íslenskra orða er eitthvað alveg sérstakt. Og ef þau eru væmin þá er það bara betra, reyndar fengu mörg mjög lítið væmin orð færri atkvæði og lentu því ekki á listann yfir þau 12 orð sem fengu flestar tilnefningar að þessu sinni. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.7.2007 kl. 08:14

20 identicon

Langar að nefna orðið forsæla sem er afskaplega fallegt orð. Bæjarnafnið Forsæludalur hefur mér alltaf þótt eitt fallegasta bæjarnafn landsins, þrátt fyrir að það þýði væntanlega að bærinn sé sífellt í skugga!

Unnar Ingvarsson 18.7.2007 kl. 12:31

21 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Forsæla gefur mér reyndar þá tilfinningu að þar sé svali (í skugganum) í hlýju veðri og þar af leiðandi vel þeginn. Merkilegt hvað sum orð framkalla heilu sögurnar í huganum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.7.2007 kl. 12:54

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband