Hjónabönd fólks af gagnstæðu kyni bönnuð - hvað?

Oft gaman að hlusta á morgunútvarpið á leiðinni í vinnuna. Stundum eins og menn séu ekki alveg vaknaðir. Þannig heyrði ég í upprifjun á sögu dagsins að X. ár væru síðan lög sem bönnuðu hjónabönd fólks af gagnstæðu kyni (!) hefði verið samþykkt einmitt á þessum degi.

Samhengið leiddi síðan í ljós, eins og hægt var að giska á, að það sem bannað var átti við fólk af gagnstæðum kynþætti, ekki gagnstæðu kyni. Og eitt annað úr sama morgunútvarpi, Richard Thompson og lagið Dad's gonna kill me, alger snilld.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Nýji Richard Thompson diskurinn "Sweet Warrior" er alveg snilld

Kristján Kristjánsson, 12.6.2007 kl. 14:44

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ef allt er eins og þetta lag þá efast ég ekki.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Viðar Eggertsson

Hvaða útvarpsstöð var þetta, langar að hlusta á netinu ef þessi útvarpsstöð hefur slíka þjónustu

Viðar Eggertsson, 12.6.2007 kl. 22:59

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þetta var morgunútvarp rásar 2 milli 9 og hálf 10 í morgun, Maggi Einars.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2007 kl. 23:11

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband