Kćra Krít, taka 2

Eins og fram hefur komiđ hér á síđunni hef ég tekiđ miklu ástfóstri viđ eyjuna Krít og fór ţangađ fjórum sinnum frá nóvember 2016 til júní 2020, ţar af tókst mér einu sinni ađ fá Ara minn međ. Fornleifarnar í Knossos hef ég skođađ í tvígang, í báđum tilfellum ţegar fáir voru ţar á ferli og tók góđum ráđum og fékk mér leiđsögn, hana Alexöndru í fyrra skiptiđ sem einkaleiđsögumann, en í seinna skiptiđ vorum viđ Ari í öđrum af tveimur, litlum hópum á svćđinu, ţeim enskumćlandi, en hinn var grískumćlandi. Eins og mér finnst nú fallegt ađ skođa fornleifar ţar sem málning fortíđarinnar hefur máđst út, ţá er svolítiđ hressilegt ađ sjá ađ á Krít hafa menn ekki hikađ viđ ađ endurmála hluta ţeirra fornminja sem ţar eru varđveittar, reyndar er varđveisluađferđin rakin til Sir Arthur Evans, sem á mestan heiđur á endurheimt Knossos ađ öđrum ólöstuđum fyrir rúmlega einni öld eđa svo og hélt ţar áfram verki fyrirrennara síns, Minos Kalikairinos, sem sjaldan er getiđ. Fann skemmtilega grein um máliđ, af ţví sagnfrćđingurinn í mér vildi fá ađ vita ađeins meira en hún Alexandra sagđi mér, sem var ţó heilmargt. 

https://www.khanacademy.org/humanities/ancient-art-civilizations/aegean-art1/minoan/a/conservation-vs-restoration-the-palace-at-knossos-crete

IMG_5508

Ţađ er ekkert ósennilegt ađ ég eigi eftir ađ blogga meira um Krít og vonandi ađ fara ţangađ enn einu sinni (tvisvar ... ţrisvar ... ). Til dćmis uppgötvađi ég borgina Chania ekki strax, en dvaldi ţar hjá henni Despoinu seinast ţegar ég kom viđ á Krít, í vikunni eftir ađ ýmsum samkomutakmörkunum var aflétt ţar, tímabundiđ auđvitađ. Gamli bćrinn er sérlega skemmtilegur og ţar er fullt af stórfínum gististöđum, kaffihús á hverji horni og fallega, rómverska höfnin er umvafin ágćtis veitingahúsum og skemmtilegu mannlífi, en viđ moskuna eru alls konar menningarviđburđir tíđir og ţeir höfđa meira til íbúanna sjálfra, sem leita í götu fyrir ofan hana ţegar ţeir fara sjálfir út ađ borđa (og drekka). Ţangađ beindi hún Despoina mér auđvitađ, ţótt hún vćri ekkert ađ dissa veitingahúsin viđ höfnina góđu, ţar sem sjórinn er svo tćr ađ fiskarnir nćstum glápa á móti á túristana sem eiga leiđ ţar hjá. Mér skilst ađ ţađ geti orđiđ ansi heitt ţarna stundum á sumrin, en ég hef undantekningarlaust veriđ í mjög ţćgilegu loftslagi í október/nóvember og maí/júní. Meira seinna, býst ég viđ :-)

33463154_10216426664877625_1943977712284598272_n (2)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband