Forvitnilegt, ef heimildir Björns eru réttar, þá eru þetta tíðindi í þessum hópi, þótt vitað sé um hópa á móti, þá hefur forystan eflaust viljað sjá aðra niðurstöðu

Mér finnst þessi frétt nokkuð forvitnileg. Ef heimildir Björns eru réttar, þá eru þetta tíðindi í þessum hópi, þótt vitað sé um hópa (útvegsmenn eru víst enn inni) á móti (nema kannski Samherji), þá hefur forystan, alla vega Vilhjálmur, eflaust viljað sjá aðra niðurstöðu. Ætli þeim sé stætt á öðru en að birta niðurstöðurnar?
mbl.is Dómsmálaráðherra: Hvers vegna birtir SA ekki niðurstöðu könnunar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Því upplýstari sem umræðan verður því fleiri munu snúast gegn aðild.

Sigurður Þórðarson, 13.12.2008 kl. 01:53

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Er Markaðssetning ESB-sinnana að hrynja?

Júlíus Björnsson, 13.12.2008 kl. 03:54

3 Smámynd: Vilborg G. Hansen

ESB umræðan hefur verið eins og suð í eyrum allra undanfarin misseri af ESB sinnum og markaðssetningaaðilum.  Svona eins og kór sem allir á endanum voru farnir að kunna textann og muldra á vörum sér.  "við viljum ESB" 

Auðvitað loksins þegar venjulegt fólk fer að tjá sig og spyrja sig spurninga, skoða fleiri möguleika í boð, umræðan upplýsist kemur í ljós að það eru bara alls ekki allir svona ástfangnir af ESB.  Legg til að fólk fylgist með www.evropunefnd.is en þar eru og verða öll gögn og álit sett inn þannig að allir eiga að geta kynnt sér málið

Vilborg G. Hansen, 13.12.2008 kl. 07:58

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Einmitt Sigurður. Og þess vegna liggur Evrópusambandssinnum lífið á. Þeir vilja ganga frá málinu sem allra fyrst með sem minnstum afskiptum almennings. Svona bara eins og áherzlan er hjá Evrópusambandinu sjálfu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 13.12.2008 kl. 12:25

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Evrópunefnd það er tvírætt og Íslengar falla ekki fyrir "con artists" tvisvar í röð.

Kreppa byggir upp virðingu fyrir langtíma minni.

Júlíus Björnsson, 13.12.2008 kl. 12:47

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband