Langsóttur kostur við vonlaust gengi

Loksins er ég búin að uppgötva einn kost fyrir eina manneskju við gengið, eins og það er þessa stundina. Það er bara engin krafa gerð á okkur, sem erum að bregða okkur úr landi, að mæta heim með allar jólagjafirnar frá útlöndum og fata fjölskylduna upp í leiðinni. Bara allt of dýrt. Ég er alsæl, ekki mjög hrifin af að eyða dýrmætum tíma erlendis í að hanga í búðum sem flestar eru eins um allan heim. Eina undantekningin er bókabúðir, þær eru ekki alls staðar eins og þær eru bara frábærar, flestar hverjar, fer kannski svolítið eftir ríkjandi tungumáli í landinu ;-) þótt ég hafi nú rekist á Kristmann í tékkneskri fornbókabúð og dýrustu bækur í heimi í dönskum meðalbókabúðum.

En sem sagt, slepp við búðarferð, og get einbeitt mér að því að umgangast ættingja og vini, sem er svo miklu skemmtilegra. Gerir ekkert til þótt ég eigi eftir að borga hótelið mitt í Boston með einhverjum fokdýrum dollurum, það er vel þess virði að fá tíma til að kíkja á borgina utan búðanna, stoppa nógu stutt þar samt.

Og nú er að styttast í að bloggfríið mitt styttist í hinn endann. Það hefur verið hálf endasleppt í alla enda. Ætli ég komist ekki í gang aftur fljótlega uppúr helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 1.10.2008 kl. 15:44

2 identicon

Þetta er nákvæmlega það sama og ég sagði við fólkið mitt þegar ég fór til Ítalíu. Sorry - hér kaupi ég ekki neitt - nada! Og ALLIR skildu mig fullkomlega

Anna Ólafsdóttir (anno) 1.10.2008 kl. 21:04

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Rosalega gott veganesti i borgarskoðun i dag. Fatt sem freistaði min annað en að ganga og trolley-ast um.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 4.10.2008 kl. 02:32

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband