Heimkomur

Heimkoma Paul Rames í nótt er mikið fagnaðarefni og vonandi verður framhald málsins jafn ánægjulegt. Vona að það vefjist ekki fyrir neinum að hér á þessi ágæta fjölskylda heima.

Á morgun verður annarri heimkomu fagnað þegar landsliðið kemur heim með sigursilfrið sitt. Smáþjóðarhjartað í mér gleðst einlæglega.

Enn eitt ,,heimkomu"-dæmi er oftarlega í huganum núna. Mér, eins og fleirum, finnst að Bandaríkjamenn hafi verið heillum horfnir undir Bush-stjórninni. Eina leiðin til nýrrar ,,heimkomu" sé að kjósa Obama í nóvember sem forseta Bandaríkjanna. Nú er hvatt til einingar en mjótt er á mununum í könnunum og það er auðvitað svolítið kvíðvænlegt, en ég held þó að þetta fari allt vel að lokum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar

Á meðan Paul Rames málið var í hámælum  fyrr í sumar, var mikið gagrýnt á Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, menn og konur kröfðust afsagnar hann og ég veit ekki hvað.  Núna hefur dómsmálaráðuneytið úrskurðai í málinu en ég hef ekki séð neinn þakka Birni Bjarnasyni fyrir það. Ekki einu sinni Paul og fjölskyldu.

IHG 

Ingvar, 26.8.2008 kl. 15:13

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Jú, jú, það var talsvert um slíkt og ein fyrstu viðbrögðin við fréttunum var ágætur pistill frá Birgittu Jónsdóttur þar sem hún segir í fyrirsögn að Björn eigi þakkir skyldar. Hér er hlekkur á þá færslu: http://birgitta.blog.is/blog/birgitta/entry/621670/

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.8.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Ingvar

Reyndar þakkar hún bara Birni en sérstaklega þakkar hún þjóðinni , en sleppir því að taka fram hvaða Birni sé verið að þakka.

IHG 

Ingvar, 26.8.2008 kl. 15:24

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það fer ekkert á milli mála hvað hún á við.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.8.2008 kl. 15:56

5 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ég hef séð marga hörðustu andstæðinga Björns hrósa honum vegna þessa máls.

Kristján Kristjánsson, 26.8.2008 kl. 16:23

6 Smámynd: Ingvar

Ljóst er að Björn Bjarnason hefur unnið að þessu máli af fagmensku líkt og hann hefur gert í öllum málum.

IHG

Ingvar, 26.8.2008 kl. 20:47

7 Smámynd: Kristján Pétursson

Vissulega er heimkoma Paul Rames mikið fagnaðarefni,nú hefur fjölsskyldan sameinast.Björn Bjarnason á þakkir skilið fyrir að ákveða að mál Paul skuli verða til lykta leitt hér á landi.Hann fær væntanlega dvalarleyfi á meðan mál hans verður til meðferðar hjá Útlendingastofnun.Ég leyfi mér að trúa því að málið fái farsælan enda.

Kristján Pétursson, 26.8.2008 kl. 21:47

8 Smámynd: Aprílrós

Sá fréttina í kvöld um þegar hann kom heim sl nótt hann Paul, og ég gtét með litlu fjölskyldunni.

Aprílrós, 26.8.2008 kl. 23:17

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þessi frétt var afskaplega táknræn um það hversu nauðsynlegt er að gera fjölskyldum kleift að vera saman og búa við öryggi.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 27.8.2008 kl. 01:03

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband