Fullt af myndum frá Kanarí

Þá er ég búin að hlaða inn fullt af myndum, var reyndar með minnislykil á mér seinustu dagana, en það er miklu betra að eyða tímanum á Kanarí til að vera þar og njóta en að hanga í tölvunni. Best að láta nokkrar þeirra njóta sín nú þegar:

Spönsk fjölskylda spilar og syngur á fimmtudagskvöldum á öðrum bar norðan við Jade Garden Þessi stóra spánska fjölskylda syngur á hverjum fimmtudegi á næsta eða næstnæsta bar norðan við Jade Garden sem er mörgum kunnur, einkum vegna víðfrægrar appelsínuandar. Söngfjölskyldan er reyndar stærri og í tilefni karnivalsins er hún hér uppáklædd. Ég tók líka smá videó, en sé til hvort ég hleð því inn líka.

 

 

 

 

  Það er ekki hægt að líða betur

Á ströndinni í fyrradag, það er einfaldlega ekki hægt að líða betur ...

 

 

 

 

 

 

 

 Þessar litlu sætu býflugur voru vígalegar

 ,,Litlu sætu" býflugurnar á karnivalinu. Smellið á myndina til að sjá hvað tattúið er vígalegt.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fiðrildin öllu nettari Og ögn nettari fiðrildi.

 

 

 

 

 

 

 

 

Ari í skútuhöfninni Puerto de MoganAri í skútuhöfninni í Puerto de Mogan.

 

 

 

 

 

 

 

 

Ranný frænka búin að taka málin í sínar hendur Ranný frænka er heimamanneskja og því oft fljót að taka málin í sínar hendur ef hægt gengur. Hér er hún með Gunna og Balda á veitingastað niðri á Tinache.

 

 

 

 

 

 

 

Alltaf úti að borða Út að borða með vinunum, Ási, Gunni, Baldi, Binna (faldi sig), Inga, Anna og Ari.

 

 

 

 

 

 

 

  Alltaf í mini-golfi, hér eru Inga og Ási

 Og svo er það mini-golfið, Inga og Ási að leik.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Það sést að það hefur verið gaman hjá ykkur. Það sést líka á mydninni af þér að þú ert orðin alveg súkkulaðibrún......ohhhhhhh..... mig langar til útlanda.

Linda litla, 20.2.2008 kl. 01:47

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Við deilum því áhugamáli heldur betur, ég fylgdist spennt með þér fyrr í vetur og nú er heldur betur tíðindasamt á þeim slóðum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.2.2008 kl. 01:50

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband