Að lifa í ,,nú"-inu

Þegar letilegur sunnudagur skellur á, farið er að rökkva, Ari minn steinsofnaður eftir að hafa farið á fund í morgun, Óli minn dottandi í sófanum yfir fínu Discovery efni, þá er auðvitað ekki hægt annað en hugsa til lagsins ,,Lazy Sunday Afternoon-a" sem var sixtís eða snemmbært seventís lag. Ég er að hugsa um allt sem er framundan, eftir mánuð verður komið nýtt ár, Hanna mín kemur eftir tæplega tvær vikur, próf eftir rúma viku og annað viku síðar, þetta er víst ekki að lífa í nú-inu, eða hvað?

(Búin að reyna að setja inn lagið, en þið fáið bara linkinn í staðinn á YouTube, Lazy Sunday Afternoon).  

Í óvæntu partíi hér á nesinu í gær brast á með frekar miklum bernskuminningum. Byrjaði sakleysislega með umræðum um skautasvell og möguleika á að endurreisa mikla skautahefð hér á nesinu. Og auðvitað fórum við að rifja upp sæla skautadaga á Bessastaðatjörn sem voru heldur betur skemmtilegir, á meðan tjörnina lagði almennilega, en það gerist sárasjaldan nú orðið. Hins vegar eru komnar margar góðar hugmyndir um hvernig megi redda góðu svelli hér. Fór nefnilega á skauta í fyrra, með krökkunum í vinnunni, og það var ekkert smá gaman. Svo kom auðvitað í ljós að einn félagi okkar hér á nesinu er úr sömu blokk og ég í vesturbænum. Sá sjötti úr þessari 24 íbúða blokk sem dúkkar upp hér á nesinu (af þeim sem bjuggu í blokkinni á árunum 1958-1965). Sem er auðvitað alveg stórmerkilegt. Ég held það sé stórlega ofmetið að lifa í nú-inu, fortíðin og framtíðin eru alveg ljómandi líka. Þannig að annað hvort fer ég að leggja mig núna (til að byggja upp framtíðina) eða læra (til að bæta fyrir fortíðarvanrækslu og búa í haginn fyrir framtíðarpróf). Nú eða pjóna, það er reyndar rosalega mikið ,,nú" - en verður jafnframt peysa í framtíðinni, sem núna er bara grár hringur.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Ég er alveg sammála þér með þaðö að sunnudagar eru letidagar. Ég nota þá a.m.k. þannig

Linda litla, 2.12.2007 kl. 16:38

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Æjá, það er eiginlega alveg löglegt!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.12.2007 kl. 16:46

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst þetta lag svo sumarlegt Anna, en ég elska það.  Finnst svo viðeigandi að sitja út í Nauthólsvík og hlusta (sennilega hef ég gert það).

Ég elska fortíðina.  Hún var kúl.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.12.2007 kl. 12:44

4 identicon

Ég fékk nostalgíukast þegar ég las um skautasvellið. Ég man meira að segja eftir skautasvellinu á Melavellinum gamla. Fór nokkrum sinnum þangað en aðallega þó niður á Tjörn á sunnudögum ef það var mannhelt svell. Ótrúlega gaman

Anna Ólafsdóttir (anno) 3.12.2007 kl. 21:15

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hvort tveggja, lagið og skautasvellin, eru svo skemmtileg skot úr fortíðinni, og ég er alveg ákveðin í að láta bæði skautana og tónlistina vera hluta af framtíðinni líka, jafnvel nútíðinni á góðum degi.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 4.12.2007 kl. 02:27

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband