Ungverjaland

Einn uppáhaldsbrandarinn hans pabba, sem hafði frekar absúrd húmor, var: ,,Ung var ég gefin Njáli, eins og kellingin sagði." (Fyrir ykkur sem efist, þá er brandarinn búinn). Vandamálið fyrir mig var bara að ég vissi aldrei hver þessi Ungverji var. 

Þetta hefur eflaust verið um það bil sem ég var fjögurra ára og ungverskir flóttamenn komu til Íslands. Svo liðu árin og ég hugsaði ekki meira um Ungverjaland en hver annar krakki og unglingur með mikla ferðaþrá. Svo þegar ég var átján eignaðist ég ágæta ungverska vinkonu, Esteru Vechery, sem reyndar var frá Osijek í Vojvodina og tilheyrði ungverska minnihlutanum þar, en Vojvodina var þá sjálfsstjórnarsvæði innan þáverandi Júgóslavíu.  Hún sagði í tíma og ótíma: I'm hungry, I'm angry and I'm Hungarian, sem er svona álíka fyndið og brandarinn hans pabba. 

Þegar ég kom fyrst til Búdapest, 22 ára að aldri, féll ég í stafi yfir heimsborginni miklu, sem mér þótti mun meira til koma en Parísar, sem ég var nýbúin að heimsækja. Þetta var löngu fyrir fall múrsins og á flakki mínu um Austur-Evrópu fannst mér þá mikill munur á fólkinu í Prag og Budapest á þessum tíma. Í Budapest var lítið hægt að merkja að fólk fyndi sig kúgað og bælt, sem aftur á móti var sláandi tilfinning í Prag, sex árum eftir ,,Vorið í Prag".

Síðan múrinn féll hef ég komið bæði til Budapest og Debrecen, sem er næststærsta borgin, austarlega í landinu og státar af allmörgum erlendum stúdentum, þeirra á meðal fáeinum tugum Íslendinga, sem flestir eru að læra læknisfræði. Þangað er ég að fara á þriðjudaginn að heilsa upp á hana dóttur mína sem er í þessum ágæta stúdentahópi, hlakka mikið til. Debrecen er afskaplega falleg miðevrópsk borg, hefur yfir sér þokka rótgróinna smáborga, í bland við bjartsýna neyslugleði. Verðlagið ennþá gott og veðrið enn betra, nema rétt yfir blá vetrarmánuðina. Samkvæmt veðurspánni verður hitinn á næstunni 14-19 gráður á daginn og sól flesta daga, en fer niður í 3-7 gráður á nóttunni. Og svo verður auðvitað mest gaman að heilsa upp á dótturina, en við ætlum líka að vera duglegar að læra/vinna í bland við skemmtunina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

manni langar bara að fara á stað þegar maður les þetta, rakst á þesssa flottu síðu þína þegar ég var að leita af efni í fyrirlestur um Hring Jóhannesson.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 15.10.2007 kl. 20:24

2 identicon

Góða ferð út! Já, og líka til baka! Vonandi skemmtið þið mæðgur ykkur eins og kostur er. Hlakka síðan til að sjá þig í næstu viku.   

Helga 15.10.2007 kl. 21:15

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk báðar!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.10.2007 kl. 00:34

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Góða ferð, elskan mín, og knúsaðu Hönnu, tilvonandi hirðlækninn minn, frá mér. Ég hef styttuna góðu frá henni við hliðina á tölvunni og fæ aldrei ritstíflu ... enda álagastytta. 

Guðríður Haraldsdóttir, 16.10.2007 kl. 00:48

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, Gurrí mín, Hanna var einmitt að minna mig á að við ættum erindi til Budapest, eins og vinnu minni framundan er háttað þá er öruggara að fá sér styttu ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.10.2007 kl. 01:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband