17. júní á Álftanesi eins og risastórt ættarmót og nunnur á víkingahátíð

17. júní er alltaf góður og það átti svo sannarlega við í dag sem aðra daga. Milt og fallegt veður, hátíðarstemmning á Álftanesi, kvenfélagsgarðurinn er orðinn svo flottur og hátíðarstemmningin var alveg yndisleg. Yndislegt umhverfi 17.júní í kvenfélagsgarðinumÁ 17 júni mæta allir Álftnesingar sem vettlingi geta valdið í kvenfélagsgarðinn þar sem hátíðardagskráin er alltaf vel þegin. Núna slógu unglingarnir í Acid við og fyrsti bæjarlistamaðurinn var valinn, Sveinbjörn I. Baldvinsson, sem var valinn í þessum mikla listamannabæ okkar, þar sem við eigum eiginlega svo marga góða listamenn að helst þyrftum við að úthluta fimm manns bæjarlistamannatitli svo allir lifi að ná þeim heiðir sem skilið eiga. En þetta er auðvitað var okkar ríkidæmi. Hannes Pétursson og Helga Ingólfsdóttir voru líka heiðruð sérstaklega og vel að því komin. Svo mættu ALLIR í kvenfélagskaffið, og þegar ég segi  ,,allir" þá er það svo sannarlega rétt, rétt um lokun  kláruðust  birgðir kvenfélagsins sem hefði átt að duga í fermingarveislur heils árgangs. Þessar trakteringar eru löngu orðnar landsfrægar, enda foreldrar og frændfólk margra Álftnesinga mættir á staðinn, þeirra á meðal stór hópur úr minni tengdafjölskyldu, foreldra nágrannakonunnar, einn vinstri grænn úr Vogunum, bróðir mannsins á næsta borði, ég veit ekki hvað ég á að hætta. Ég held ég vitni í orð eins Kópavogsbúa sem var orðinn tíður gestur á þorrablótunum okkar: Ég held þið ættuð að fara að skipuleggja helgarferðir á Álftanes! Eftir hátíðarhöldin á nesinu ákváðum við mamma að skjótast í bíltúr og enduðum á víkingahátíðinni í Hafnarfirði. Nunnur á víkingahátíðMikið rosalega kom hún skemmtilega á óvart, svo flott handverk og frábært mannlíf. Alþjóðlegt yfirbragð og skemmtileg stemmning. Þarna var Jörmundur Ingi að gefa saman hjón, alls konar elddansar og fleiri atriði voru til skemmtunar og eldsmiðir að störfum ásamt ótal öðrum handverksmönnum.

 Og ekkert smá krúttlegt að rekast á nokkar nunnur á Víkingahátíð! Lifi margbeytileikinn, þarna voru krakkar að leika sér, vinnufélagar í fullum víkingaklæðum og hátíðarstemmning sem sannar það sem ég hef heyrt svo marga segja: Þessi víkingahátíð hlýtur að vera komin til að vera. Handverk í fremstu röð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Takk fyrir þetta, gaman að kíkja á stemminguna á Álftanesi, en veistu afhverju nunnurnar eru í svona fallega bláum kuflum?

Ester Sveinbjarnardóttir, 17.6.2007 kl. 21:16

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Heldurðu kannski að þetta séu ekki nunnur? Hmmm. Annars held að þetta séu mexíkósku nunnurnar sem eru mikið á Landakoti, þær voru alla vega í miklu litskrúðugri fötum en þær innilokuðu í klaustrinu í Hafnarfirði.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.6.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Jú þetta eru nunnur, en ég var að velta fyrir mér um daginn hvað þessi búningur er miklu fallegri en sá svarti og hvíti.

Ester Sveinbjarnardóttir, 17.6.2007 kl. 22:24

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband