Kúnstpáska eða fyrirstaða

Veit ekki hvort ég á að túlka hlé sem gert var í dag á stjórnarmyndunarviðræðum sem kúnstpásu eða að rekist hefur verið í einhverja fyrirstöðu. Spurning hvort vangaveltur fjölmiðla um hver fyrirstaðan sé séu réttar. Hef lýst áhyggjum mínum út af Evrópusambandsmálunum og vona sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér um það að þar sé brotpunkturinn sem Samfylkingin ætlar að ná fram. Hef samt enga trú á að uppúr slitni.

Uppákoman með Jón Sigurðsson (eru fjölmiðlar að reyna að knýja hann í afsögn) eru líka merkileg. Ekki óvitlaus tilgáta, en hálf hallærislegt að leyfa manninum ekki að bíða með að tilkynna þetta, eða yfir höfuð að fá að ráða þessu sjálfur, ef hann ætlar að sitja áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kona má lengi vona Anna mín en nú er allt útlit fyrir að þetta sé að ganga upp.  Er að reyna að vera jákvæð og minni mig á að þar til næst verður kosið (eftir ca 2 ár skv. Reykjavíkurbréfi)munum við VG stækka og stækka og stækka....

Svon leim hjá Íslandi í dag.. stór pólitísk tíðindi eftir fréttir!!  Kommon ég vissi að það gat nú ekki verið eitthvað merkilegt því þá hefði það að sjálfsögðu komið í fréttunum, dö!  Hálf bjánalegt að láta Jón ekki friði nú um stundir.  Verið að neyða fram fréttir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 16:42

2 identicon

Já, ég er búin að velta þessu dálítið fyrir mér með Jón.

Ég efast um að Steingrímur Ólafssson, fyrrverandi aðstoðarmaður Halldórs og mjög vel tengur innan framsókna myndi láta svona hluti út úr sér nema að hann sé með MJÖG traustar heimilidir fyrir þessu.

Þannig að ég held að þetta sé rétt, en þetta átti bara ekki að leka...

Jóhanna 22.5.2007 kl. 17:47

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband