Framboðslistar VG lagðir fram - stefnan í kosningabaráttunni mótuð um helgina

Þá eru framboðslistar VG í Reykjavík og Suðvestrinu komnir fram. Ég lenti á góðum stað á listanum í Reykjavík norðri - eins og ég reyndar vissi fyrir (reyndar ekki hvort það yrði í norðri eða suðri) en beið með að ræða þar til listinn væri fullgerður - og hlakka til að kjósa Suðvesturlistann sem er mjög skemmtilega skipaður, eins og fyrirsjáanlegt var. Allt getur gerst en horfur eru á að við fáum þrjú þingsæti í öllum kjördæmum nema einu, mér er sagt að núverandi niðurbrot kannana segi að það sé vgnorðvesturkjördæm. Mismunur á stærð kjördæmanna og lítið úrtak í niðurbrotnum tölum getur hins vegar raskað þessu enn meira og kosninganóttin verður spennandi. Mér sýnist þó að ég sé líkleg í varaþingsæti, sem er mjög áhugaverð staða. Eins og ég hef ekki saknað þingsins sem vinnustaðar þessi 14 ár sem eru liðin síðan ég hætti þar, þá sé ég núna lag fyrir hugsjónirnar, lag sem ekki kemur alltaf.

Vinstri græn hafa skýra og góða stefnuskrá. Áherslurnar í kosningabaráttunni núna verða mótaðar á landsfundinum sem hefst núna klukkan þrjú í dag og stendur alla helgina.Þetta verður stutt og snörp barátta, ekki nema fimm vikur til kosninga. Til að tryggja réttlæti, jöfnuð og vönduð vinnubrögð í því gríðarlega átaki sem verður að koma samfélaginu aftur í starfhæft horf og tryggja hag þeirra sem verst eru settir er ekki hægt að sætta sig annað en stjórn með VG innanborðs eftir kosningar. Ábyrgð okkar sem mótum kosningaáherslur er því mikil en veganestið, stefna VG, gott.

Okkar fólk á mjög annríkt við að stjórna landinu og þoka frábærum málum áfram, loksins sjáum við að verið er að vinna heimavinnuna sína til þess að geta tekið á þessum hrikalegu efnahagsmálum. Því miður var komið nánast að auðu borði í mörgum þeim mikilvægu verkefnum sem nú er verið að vinna að, aðgerðaleysi fyrri stjórnar, sem ég var að vona að væri ekki eins svakalegt og virtist vera, var því miður ótrúlegt. Ég er líka sérlega ánægð með afstöðuna sem tekin er gegn mansali og vændi, þar sem áherslan er ekki á að níðast neitt frekar á stúlkunum og konunum sem hafa ,,lent" í þessu hlutskipti heldur beina sjónum sínum að því hvað liggur að baki mansali og þeirri flóknu umræðu sem flest í klám- og kynlífsvæðingu samfélagsins. Mikil kvenfyrirlitning og mannfyrirliting sem þar á sér stað, því við eigum ekki að gleyma því að strákar eru líka hluti fórnarlambanna sem selja sig, þótt fæstir þeirra séu gagngert fluttir til landsins í því skyni, nóg er af innlendum fíklum sem menn virðast reiðubúnir að notfæra sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf jafn jákvæð. Þetta verður spennandi kosningar hjá okkur.

Lífsnausynlegt að okkur gangi vel í þetta skiptið. Fáum ekki betra tækifæri, að koma okkar stefnumálum í framkvæmd.

Ólafur Sveinsson 20.3.2009 kl. 12:56

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ég get varla hugsað þá hugsun til enda að aðrir en VG taki við eftir kosningar. Og ég vil líka að VG leiði þá ríkisstjórn, málefnalega séð, og get reyndar ekki séð annað en Jóhanna eigi miklu, miklu meiri samleið með VG en eigin flokki í flestum velferðarmálum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 21.3.2009 kl. 00:32

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband