Útsvar viku eftir viku ... þetta er frekar fyndið!

Eins og landsmálapóltíkin er þessa dagana þá er eiginlega ekki hægt að vera að einbeita sér að því að keppa í Útsvari fyrir sveitina sína (sem er víst orðin bær núna - Sveitarfélagið Álftanesi). Það er ekki liðin vika síðan við Guðmundur Andri og Hilmar Örn kepptum seinast og ekkert er eins og þá. Ríkisstjórnin fallin, seðlabankastjórinn á útleið, vextirnir ,,hérumbil" lækkaðir, snjórinn þekur sveitina mína og nærsveitir og þorrablótið afstaðið (ekki svo að skilja að ég hafi mætti, læt góugleði hestamannafélagsins Sóta duga). Og við þessar aðstæður eigum við víst bara að auka fróðleik okkar. Það er bæði verðugt verkefni og hálf geggjað markmið. Ég held líka að við séum eina liðið sem mætir ,,vikulega." Minnir mig á ljóð eftir tvo menntaskólanema, sem kom út endur fyrir löngu á vegum Vikunnar, sem var að plata landslýð með ljóðabókinni Þokum:

Abba labba lá

og læknarnir héldu að það yrði viku lega

svo dó hún úr L-i

og það var sama dag og Dilli dó

og það færðist korríró 

yfir sveitina.

Fimm sinnum fimm eru simsalabimm 

(skrifað eftir minni).

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Hlakka til að fylgjast með ykkur í kvöld

, 30.1.2009 kl. 09:59

2 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Gaman að þú skulir vitna í Þokur -- eitt af skemmtilegum uppátækjum sem runnin voru undan rifjum Gísla Sigurðssonar ritstjóra og fékk líf í samræðum hans og samstarfsmannanna. Menntaskólanemarnir tveir voru Jakob Möller (nú lögmaður, að ég held) og Gylfi Baldursson (nú talmeinafræðingur).

Þú manst þetta merkilega rétt. En önnur lína er svona:

og læknirinn kom og sagði 

að þetta myndi verða viku lega.

Svo er orðunum „það var“ ofaukið á undan sama dag etc.

-- Það væri gott að rifja upp fleiri þokuljóð við tækifæri.

Kv. í bæinn

Sigurður Hreiðar, 30.1.2009 kl. 12:30

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Einhvers staðar á ég ljósrit af bókinni hennar mömmu í fórum mínum. Mér fannst þetta alveg óskaplega skemmtileg ljóðabók, þótt í gríni væri samin, og las hana upp til agna á sínum tíma, en svolítið langt síðan. Og sagan í kringum þetta ævintýri, sem ég las auðvitað í Vikunni, var alveg sérlega skemmtileg. Gylfa Baldurs þekkti ég smávegis því Fríða Guðmunds, mamma hans, var mikil vinkona ömmu minnar, Kötu. Gylfi er auðvitað þekktur fyrir þátttöku sína í tónlistarspurningaþætti, hét hann ekki Kontrapunktur? Skemmtilegur þáttur.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.1.2009 kl. 15:24

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gangi ykkur OFBOÐSLEGA vel í kvöld. Hlakka til að horfa á ykkur, vonandi rústa Kópavogi. Múahahahahah!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.1.2009 kl. 19:15

5 identicon

Þetta stóð tæpt en tókst hér um bil.

Þið vinnið þau bara í úrslitum á næsta ári.

Hlakka til að sjá þig.

Jóhanna 30.1.2009 kl. 21:34

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk fyrir góðar óskir.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.1.2009 kl. 22:06

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband