Verður næsta ríkisstjórn undir forystu Dags B. Eggertssonar - eða er þingrof í myndinni?

Verður næsta ríkisstjórn undir forystu Dags B. Eggertssonar - eða er þingrof í myndinni? Orð Ingibjargar Sólrúnar renna stoðum undir hið fyrra, Geir hefur bókstaflega dregið hitt inn í myndina.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áföll þessarar þjóðar eru næstum takmarkalaus. Dagur B. Eggertsson!  Hann hefur ekki verið kosinn á þing. Er hann enn á biðlaunum sem fyrrum borgarstjóri? Er hann ekki í fullu starfi sem læknir + plús fullu starfi sem borgarfulltrúi. Á nú að bæta við fullu starfi sem forsætisráðherra.

Ætlar þessari andsk. valdagrægi stjórnmálamanna aldrei að linna?

Hvað þarf til að þingmenn og aðrir stjórnmálamenn skilji að þjóðin þarf lífsnauðsynlega og ég meina lífsnauðsynlega á því að halda að hér taki við fagleg utanþingsstjórn.

Sitjandi þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, burt, burt, burt!

Helga 26.1.2009 kl. 13:23

2 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Það er ekki nógu mikið veggpláss fyrir spegla í Alþingishúsinu, annars verðum við að taka niður myndina af Jóni Sigurðssyni "forseta".   Nei, úff nei, ekki Dag.  Nú vantar okkur alvöru stjórnmálamenn.

Baldur Gautur Baldursson, 26.1.2009 kl. 17:59

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Böndin bárust að Degi þegar sagt var að ráðherrann yrði sóttur út í bæ og Samfylkingin hefur áður sótt Dag út í bæ, en síðan kom í ljós að Jóhanna er inni í myndinni og kannski fleiri. Það verður ekki kosið á morgun, þannig að það skiptir máli hver tekur við núna.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.1.2009 kl. 18:08

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband