Ég hef ekki hundsvit á Eurovision ... en stefnir þetta ekki allt í 16.sætið?

Þótt ég hafi einu sinni unnið pottinn (þegar Eistland vann) í Eurovision partýi, þá hef ég afskaplega litla tilfinningu fyrir sigurlögum Eurovision. Rússland heyrði ég og var ekki hrifin, en Grikkland, ég bara þekki það lag ekki. En sjáum hvað setur. Og skyldum við lenda í 16. sætinu, enn einu sinni?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Ok Anna ég klúðrari þessu eins og svo mörgu öðru. Mér er alveg sama í rauninni, ef þú bara vissir hvað ég var neydd til að gera, það lifir með mér alla ævi en öllum öðrum var sama, það er svo skrýtið. En best að lifa fyrir einn dag í einu eins og ég sagði einu sinni.

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 24.5.2008 kl. 22:10

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Var það ekki 14. sætið?

Guðríður Haraldsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:21

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Danir björguðu okkur naumlega frá 16. sætinu með því að gefa okkur 12 stig!!!!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.5.2008 kl. 23:13

4 Smámynd: Jens Guð

  Er Eurovision,  söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva,  einhversstaðar í gangi?  Ja,  ég spyr svona í gríni.  Læt þetta fara framhjá mér.

  Fyrir nokkrum árum var ég staddur í Þýskalandi ásamt fleiri Íslendingum þegar úrslitakvöld Eurovision fór fram.  Við fórum á skemmtistað og ferðafélagar mínir vildu fá að fylgjast með Eurovision.  Starfsfólk skemmtistaðarins vissi ekki hvað Íslendingarnir voru að spyrja um.  Loks kveikti einn á perunni og sagði:  "Er það ekki hommakeppnin í sjónvarpinu?  Þið getið áreiðanlega fundið einhvern hommaklúbb þar sem fylgst er með þessu."

  Í annað skipti var ég staddur einn í London þegar úrslitakvöld Eurovision fór fram.  Blessunarlega varð ég ekkert var við Eurovision þar.  Ég keypti að venju öll bresk músíkblöð sem ég sá.  Ekki stafkrókur um Eurovision þar.  En í einu götublaði,  The Sun,  sá ég örstutta innsíðufrétt af úrslitum.  Fréttin var án myndar og náði varla yfir 10 línur í texta.   

Jens Guð, 25.5.2008 kl. 00:31

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ég kannast við þetta, Jens, ekki gleyma því að 2. frétt í íslenska útvarpinu þegar Selma vann EKKI var að það hefði verið 4. frétt í sænska útvarpinu að Svíþjóð hefði unnið Eurovision!!!!

Við mamma sátum á hótelherbergi í Frankfurt 1989 þegar Daniel Ágúst fékk ekkert stig og voru ábyggilega eina fólkið í borginni sem var að horfa á Eurovision, enginn í lobby-inu vissi alla vega af keppninni.

Og í kvöld datt dönsk vinkona mín (sem á fullt af íslenskum vinum) inn á msn-ið meðan atkvæðagreiðslan var. Hún nefndi ekki Eurovision og ég ekki heldur, nóg annað að spjalla, og samt voru það Danir sem gáfu okkur 12 stig. Þannig að við erum spes, allir á leið í Eurovision partý, og þetta var bara krúttlegt ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.5.2008 kl. 00:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband