Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 571303
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Skemmtilegur skottúr í sumarbústaðinn
29.3.2008 | 22:44
Í dag fórum við í skemmtilegan skottúr upp í Borgarfjörð að kíkja á sumarbústaðinn okkar, sem ófært hefur verið að talsverðan hluta vetrarins. Enn eru þar skaflar á veginum, en allt vel fært jeppum alla vega. Allt var í himnalagi uppi í bústað, hafði reyndar verið tékkað á honum fyrr í vetur þegar góður kafli komi í veðráttuna, svo það kom ekki á óvart. Hins vegar alveg merkilegt hvað það grípur okkur mikil værð og notalegheit um leið og komið er þangað.
Fallegur dagur í Borgarfirði í dag eins og þessar myndir sýna:
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Athugasemdir
Segi það enn og aftur Anna mín, þið eruð öfundsverð af að eiga bústað í þessari fallegu sveit. Til hamingju með það.
Yndislegar myndir.
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.3.2008 kl. 10:15
Þið eigið sumarbústað á fallegum stað sé ég, það er yndislegt að vera úti í náttúrunni með myndavél, þetta er grenilega staður til þess.
Eigðu góðan dag.
Linda litla, 30.3.2008 kl. 10:48
Þetta er sælureitur, mágkona mín sagði þegar við ætluðum að byggja bústað: - Hvort viljið þið útsýni eða skjól? - Hvort tveggja, svaraði ég. Og það tókst.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.3.2008 kl. 12:09
Frábært, ekki er verra að hafa skjól líka hehehe en það munar svakalega miklu að hafa fallegt útsýni þegar maður er í sumarbústað.
Linda litla, 30.3.2008 kl. 16:18
Gott hjá ykkur. Var látið renna í heita pottinn? Vildi að ég ætti svona sælureit, en svo er 'Alftanesið líka afskaplega fallegt
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 30.3.2008 kl. 19:51
Bíðum ekki mikið lengur með að láta renna í heita pottinn, hann verður á fullu þegar þið komið til landsins, Erna. Það er að verða óhætt (veðursins vegna) að vera með vatnið á stöðugt. Lengi vel hélt ég að ég myndi ekki vilja bústað af því Álftanesið er svo fallegt, en það er eins og við endurnýjum alla orku með því að fara upp i bústað, jafnvel skottúr skilar okkur endurnærðum. En Linda, ef við hefðum þurft að velja milli útsýnisins og skjólsins, þá hefðum við valið útsýnið, ekki spurning.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.3.2008 kl. 23:32