Held að Mannaveiðar muni rokka ... (þó ég hafi lesið bókina)

Mér líst bara ljómandi vel á Mannaveiðar, leikararnir og stemmningin lofa góðu. Skítt með það þótt ég sé búin að lesa bókina, kannski á þetta samt eftir að koma á óvart. Ef ekki, þá er alla vega hægt að hafa ánægju af skemmtilegri útfærslu á þessu handriti.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Jæja takk, ég hef reyndar ekki lesið bókina og einhvern veginn fór það svo í gærkvöldi að ég missti bæði af fyrri sýningunni og plúsnum líka. Sem betur fer er þátturinn endurtekinn í kvöld þá verð ég að horfa. Slæmt að þurfa plata son minn sem veit að ég hef gaman af góðum krimmum, hann lagði svo hart að mér að horfa, sem ég ætlaði auðvitað að gera. Var bara svo upptekin af því að vaka að ég gleymdi öllu öðru, og enn vaki ég.  Guð hjálpi mér ef ég sef af mér endursýninguna í kvöld.

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 25.3.2008 kl. 11:18

2 identicon

Þátturinn lofar alveg rosalega góðu. Leikurinn var frábær og mér fannst ég bara vera að horfa á einn góðan danskan

Lísa Margrét Kristjánsdóttir 25.3.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Linda litla

Ég heyrði bara af þessu í morgun, það gæti verið gaman að breyta til og kíkja aðeins á sjónvarpið.

Eftir hvern er annars þessi bók ?

Linda litla, 25.3.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ég þarf greinilega að fara að horfa á danska þætti ef leikurinn er af þessum gæðastaðli. Er treg til að venja mig á framhaldsþætti af því mér finnst það of mikil binding, horfi frekar á þætti þar sem hver og einn getur staðið stakur. Fylgdist samt með Pressu og 24 (sem bið virðist á að komi aftur á skjáinn) og það var nóg áreiti fyrir mig í bili. Mæli með að setja vekjaraklukku ef þú vilt ná endursýningunni, Tara, það er mitt trikk af því ég get dottið út af á undarlegustu tímum (kalla það ,,power nap" - hljómar vel og svo er ég alltaf endurnærð).

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.3.2008 kl. 14:41

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Bókin heitir Afturelding og er eftir Viktor Arnar Ingólfsson.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.3.2008 kl. 14:58

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Mér fannst þetta ágætis þáttur, að vísu leikurinn soldið stirður á köflum hjá sumum. Verst að þetta er á sama tíma og Ædólið !

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.3.2008 kl. 15:07

7 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Já takk góð hugmynd Anna :) en ég var að vakna núna, datt út af seinni partinn eftir langa óvelkomna vöku, svo ég næ Mannaveiðum! Vildi að það væri til klukka sem slökkt gæti á okkur jafn snöggt og hún getur vakið okkur upp, hljómar það ekki vel?!

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 25.3.2008 kl. 21:43

8 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það vantar svona ON/OFF takka á okkur sum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.3.2008 kl. 22:58

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér fannst þetta dúndurþáttur. Sá hann í endursýningu í gær. Svaf hann af mér um páskana ...

Guðríður Haraldsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:26

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband