Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 571089
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Af hverju fást ekki sítrónugosdrykkir á Íslandi?
26.2.2008 | 00:52
Alltaf þegar ég kem úr fríi erlendis frá þá er ég staðráðin í að kaupa mér annað hvort Fanta lemon eða Schweppers lemon drykki. Og gríp jafnharðan í tómt. Þótt sódavatn sé vissulega aðaldrykkurinn minn í útlöndum þá finnst mér hressandi að fá mér sítrónudrykki líka og svo verð ég alltaf jafn undrandi að finna þá ekki hér heima. Ef einhverjir búa yfir upplýsingum um þetta stórundarlega mál, vinsamlegast látið mig vita. Kranavatnið er fínt en stundum þarf að breyta um bragð og sítrónubragðið er einfaldlega mjög gott. Hef reynt að blanda sítrónusafa og sódavatni saman og það er bara ekki að virka!
Flokkur: Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:53 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
T2 er sítrónugos, bragðmikið sítrónubragð af því og það er algjör snilld. Prófaðu það, ég get ekki drukkið það, ég fæ svo svakalegan brjóstsviða af því. En það er alveg rosalega gott.
Linda litla, 26.2.2008 kl. 01:07
Takk, Linda, ég hef smakkað það og finnst rosalega gott, en það er samt eitthvað sem mig langar í sem er enn öðru vísi á bragðið. Ég get ekki farið að flytja inn 20 lítra af Fanta Lemon í hvert sinn sem ég kem heim frá útlöndum ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 01:13
Sammála, það vantar Fanta lemon eða Schweppes. Mér þykja þessir drykkir mjög hressandi. Lítið fyrir gos. Sodavatn og bjór. Uppgötvaði Tuborg sódavatn fyrir nokkrum árum. Mjög gott. Hér vel ég gamla Egils og er svo með sodastream og set svo mikið gas í að ég finn virkilega fyrir vatninu.
Hólmdís Hjartardóttir, 26.2.2008 kl. 08:56
Er sprite ekki lemon/lime drykkur?
En annars er ég algjörlega fylgjandi þessu! Vantar gæðadrykki eins og Orangina o.fl.
Finnur 26.2.2008 kl. 12:31
Takk fyrir stuðninginn og ábendingarnar. Þarf að skoða málið aðeins og kannski verður hægt að taka upp smá þrýsting á framleiðendur við tækifæri. Verst að þetta er ekki fremst á vramkvæmdalistanum mínum, en samt, gott að opna málið ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 14:39
Það er reyndar ekki langt síðan ég keypti fanta lemon í bónus. Er það örugglega ekki til þar ?
Linda litla, 26.2.2008 kl. 16:01
Hmmm, ég ætla að tékka, í hvaða Bónus-búð fannstu þessa gersemi?
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 16:06
Sammála, sakna Fanta Lemon. Þangað til...
Það er kúnst að gera sítrónusafa heima :
Maður á víst að leysa sykurinn upp í heitu vatni, skrapa gula börkinn af og setja út í. Forðast að nota neitt af því hvíta á bak við af því það er svo biturt.
Svo þarf aðeins að salta, ótrúlegt nokk..
Hér er uppskrift :
INGREDIENTS
10–12 medium lemons , scrubbed well, halved pole to pole, all halves sliced thin
1 1/4 cups granulated sugar
pinch table salt (optional)
5 cups water (cold)
Mash lemons and sugar (and salt, if using) in large, deep bowl or saucepan with potato masher or wooden spoon until lemon slices give up their juice, sugar is dissolved, and juice is thickened to syrup consistency, about 4 minutes. Pour half the lemon slices and syrup through large sieve over bowl or saucepan; press on solids with masher or back of wooden spoon to release as much liquid as possible. Discard solids; transfer liquid to serving pitcher. Repeat process with remaining lemon slices. Stir in water until blended. Chill well and stir to blend before serving, over ice if desired.
Kári Harðarson, 26.2.2008 kl. 16:36
Viðskiptahugmynd ?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.2.2008 kl. 19:35
Mér sýnist alla vega að það sé kominn ákveðinn markhópur fyrir þessa vöru.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 19:45
Ég klappaði höndunum þegar ég fann loksins bitter lemon í Blómavali. Lífrænt meira að segja. Held að það sé hægt að fá það í einhverjum fleiri búðum sem selja lífrænar vörur.
Gestur Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 21:35
Þetta seinasta líst mér nokkuð vel á. Tékka á því næst þegar ég á leið um nálægt Blómavali. Takk aftur, öll.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.2.2008 kl. 22:01