Orð sem enda á ,,gangur"

Eitt sinn bjó ég með mjög skemmtilegu fólki á Miklubraut. Eitt af því sem okkur datt einhvern tíma í hug var að finna eins mörg orð og við gætum sem enduðu á ,,gangur". Við vorum komin með yfir 40 orð þegar við gáfumst upp. Flestir þekkja þessi orð, uppgangur, niðurgangur, tilgangur, fjórgangur, frágangur ... þau eru sem sagt alla vega fleiri en 40 allt í allt. Lýsi eftir tilnefningum, orð eru svo skemmtileg!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér var á sínum tíma kennt að beygja orðið gangur svona; hér er gangur, umgangur,frágangur tilgangur.

Hólmdís Hjartardóttir 22.11.2007 kl. 16:01

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

þankagangur... hmm.. man ekki meira í bili!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.11.2007 kl. 16:05

3 identicon

Hágangur er fjallsnafn fyrir norðaustan .....

Gústi 22.11.2007 kl. 16:21

4 identicon

Þú ert að gleyma alla vega fimmgangi, manngangi..

Jóhanna 22.11.2007 kl. 17:35

5 identicon

Stofugangur, samgangur, forgangur, fótgangur, fiskigangur, handagangur, herbergisgangur, framgangur,vindgangur, inngangur, útgangur, úrgangur, frumgangur, sjávargangur, subbugangur, sólargangur, stigagangur, heimagangur, draugagangur, manngangur, gestagangur, seinagangur, ágangur, árgangur, hægagangur, gauragangur, aðgangur, atgangur.

Jæja rífandi gangur í þessu kannski ætti ég að leyfa öðrum að taka þátt og hætta núna

Iðunn 22.11.2007 kl. 17:50

6 identicon

svo er svolítill : afgangur;)  ljósagangur, sjógangur, gegnumgangur, lestargangur, fjárgangur, skógargangur, vatnsgangur, eldgangur, kossagangur, kjaftagangur

Æj sorry þetta er svo gaman ég stóðst ekki að bæta nokkrum við það er samt ekki allt búið svo fleiri geta verið með

Iðunn 22.11.2007 kl. 18:17

7 identicon

Frekjugangur, kjánagangur, aulagangur, kjörgangur, krossgangur, kostgangur, ógangur, verkgangur, vergangur

Erfitt að hætta

Iðunn 22.11.2007 kl. 19:47

8 Smámynd: Linda litla

Þetta er bara að "ganga" ágætlega hjá öllum he he he á mínu heimili núna er bara óþekktargangur í örverpinu mínu.

Linda litla, 22.11.2007 kl. 20:38

9 Smámynd: Ár & síð

Svona af því að þú ert í pólitíkinni.... Yfirgangur

Ár & síð, 22.11.2007 kl. 21:37

10 identicon

Berserksgangur

Blóðgangur

Eftirgangur

Gæsagangur

Fyrirgangur

Iðunn 22.11.2007 kl. 21:48

11 identicon

manngangur?, var það kannski komið?

Anna Ólafsdóttir (anno) 22.11.2007 kl. 22:05

12 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sæl Anna,

Undir þetta falla líka samsett orð þar sem fyrra orðið endar á g- og seinna á -angur, t.d. hugangur

Orðið "gangur" skilar 188 þúsund niðurstöðum á google.  Ég held að það sé hægt að leita bara að orðum sem enda á tiltekinn hátt en ég kann það bara ekki.

Þorsteinn Sverrisson, 22.11.2007 kl. 22:08

13 identicon

Iðunn er svo dugleg að tína til orð að hún sló mig út af laginu.  En eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti þá sýnist mér að það vanti skrúfgang: skrúfgangur.

Svo er önnur pæling og ekki síður skemmtileg af hverju er seinni liður svo margra og ólíkra orða "gangur"?

Helga 22.11.2007 kl. 22:22

14 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það stendur ekki á hjálpinni frá ykkur, hlakka til að telja þetta saman, ég sé strax orð sem við á Miklubrautinni vorum ekki með á sínum tíma.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.11.2007 kl. 22:59

15 Smámynd: Þórbergur Torfason

Eftirgangur, forgangur, hamagangur, atgangur, vergangur, gæsagangur.

Þórbergur Torfason, 23.11.2007 kl. 00:09

16 identicon

Landgangur,sjógangur

Hólmdís Hjartardottir 23.11.2007 kl. 00:28

17 identicon

Svo einn gamall húsgangur,brussugangur,óhemjugangur

Hólmdís Hjartardóttir 23.11.2007 kl. 00:34

18 identicon

Árgangur,uppgangur,djöfulgangur,hamagangur,vélargangur,stultugangur,viðgangur,vindgangur

Hólmdís Hjartardóttir 23.11.2007 kl. 02:08

19 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þetta er dýrlegt safn gang-orða. Þið eruð gangandi orðabækur, takk!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.11.2007 kl. 02:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband