Volgt sódavatn og vinnutími

Eitt af því sem ég hlakkaði til í nýja free-lance lífinu mínu var að geta hagað vinnutíma mínum að hentugleikum. Var því heldur hissa í gær þegar ég var sest við tölvuna og farin að vinna kl. 9 um morgun. Í ljósi spakmælisins ,,Sá sem ekki getur sofið til hádegis hefur slæma samvisku" komst ég auðvitað að því að ástæðan var sú að ég var búin að setja á mig sjálfskipaða dead-line í lok dagsins fyrir ákveðinn hluta þess verkefnis sem ég er aðallega að vinna í núna. Þannig að allt var þetta laukrétt.

AimagesAnnað sem kom mér á óvart var að sódavatnið mitt góða, sem húkti inn í ísskáp, hreyfðist ekki. Svo tók ég það úr ísskápnum og eftir smá hlýnun þá drakk ég það af bestu lyst. Þannig að sennilega þykir mér það betra volgt. Hins vegar stendur klakavélin alltaf fyrir sínu og ófá klakavatnsglösin sem hafa verið drukkin að undanförnu.

Núna er ég komin í meira sannfærandi fasa, svaf með góðri samvisku til hádegis og drolla eflaust yfir verkefnum frameftir nóttu. Fína vinnuaðstaðan mín uppi er ekki komin í gagnið, það kostar smá tíma að setja hana upp, og hann hef ég ekki eins og sakir standa, enda fer ágætlega um mig í stofunni með tónlist í eyrum, vel varin fyrir umhverfishljóðum, fjölskyldumeðlimir í kring, Hanna á msn og horfi ekki á annað í sjónvarpinu en House.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ohhh, missti af House í gær, mun bæta mér það upp í endursýningu í kvöld! Gaman að fá fréttir af þér og að samviskan skuli vera svona hrein! heheheheh! Ætla að sjá hvort ég geti ekki sofið til hádegis á morgun ... smápróf.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.10.2007 kl. 19:30

2 identicon

Ég er í framhaldsþáttastraffi, annars hangi ég of mikið við sjónvarpið. House fær ekki að vera með. Ég er þannig með drykkina að mér er yfirleitt sama um hitastigið. Ég get t.d. drukkið kaffi á hvaða hitastigi sem er nema helst ekki sjóðandi heitt. ég fíla volgt sódavatn

Anna Ólafsdóttir (anno) 27.10.2007 kl. 16:13

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

gangi þér vel með að vera free-lance !

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 23:49

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, ég er þegar farin að detta í gamla free-lance gírinn, þótt það séu næstum átta ár síðan ég var seinast af ráði að vinna free-lance. Sem yfir-kisa í kaffimálum þá er kaffið mitt núna að bíða eftir því að komast ,,niður" í rétt hitastig.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.10.2007 kl. 13:32

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það væri áreiðanlega snjallt að fara í framhaldsþáttabindindi, sú var tíðin að ég horfði nánast ekkert á sjónvarp og auðvitað hafði ég meiri tíma þá. Friends-serían fór meðal annars nánast framhjá mér flest árin, en hef skemmt mér ágætlega yfir þætti og þætti í endursýningu og sömuleiðis DVD birgðum sem eru til í fjölskyldunni. Þótt ég horfi ekki mikið á sjónvarp, þá brást þetta bindindi alveg þegar ég uppgötvaði Ally McBeal og síðar þegar sólarhringsmaraþon kynnti mig fyrir 24.

Síðan hef ég orðið húkkt á nokkrum seríum og bíð spennt eftir næsta skammti af 24, eins og þægur fíkill sem veit að skammturinn er ekki góður en mjög langþráður. Ætla ekki að láta platast enn og aftur yfir Prison Break (segi ég núna) en hins vegar harma ég það að hafa ekki uppgötvað Grey's anatomy (sem Gurrí skrifar upp á ensku, öfunda hana af kjarkinum) fyrr. Bæti það upp. House hefur aldrei orðið fastur liður, en ég elska hann samt og á slatta af óskoðuðum þáttum í tölvunni sem ég geymi til seinni tíma. Lá eitt sinn veik í næstum 7 vikur og var svo illa haldin að ég horfði bara á heilalausar unglingamyndir en stefni að því ef ég veikist aftur að hafa alla vega heilabú fyrir House.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.10.2007 kl. 15:10

6 identicon

Mér sýnist hér að upp sé runninn tími játninga hjá konum.  Er ekki best að slást í hópinn og játa að ég hef aldrei séð heilan þátt með House, Grey's Anatomy, Ally McBeal, Prison Break, 24, Friends, Aðþrengdar eiginkonur, Oprah Winfrey, Soprano, að ekki sé minnst á alla framhaldsþættina sem ég veit ekki hvað heita. Þekki þessi nöfn bara af afspurn.  Svo er það spurning hvort kona telst vera viðræðuhæf eftir að hafa upplýst þetta.

Helga 28.10.2007 kl. 15:55

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband