Gestir sem koma á bestu eða verstu stundu

Merkilegt hvað sumir gestir (vinir og vandamenn meðtaldir) hafa lag á að koma þegar síst skyldi, þegar allt er á hvolfi hjá manni, einhver rosalega upptekinn og þar fram eftir götunum.

En merkilegt nokk, það er líka til fólk sem er alger andstæða þessa, kemur bara þegar vel stendur á. Bróðir minn er einn þessara manna sem betur fer stundum frekar óvænt í heimsókn, en það merkilega er, helst ekki nema mjög vel standi á. Held hann hafi aldrei komið þegar við erum rétt að þjóta út úr dyrunum, þegar tíminn er að hlaupa frá manni í einhverju verkefni, og reyndar vill yfirelitt svo til að ég er rétt búin að gera einhverja (minni háttar) lagfæringu eða tiltekt heima fyrir þegar hann birtist. Um helgina vorum við loksins að ryðja það sem eftir er af efri hæðinni og flota, og einmitt í gærkvöldi þegar við vorum ekki með neitt planað í framkvæmdum vegna praktískra mála, þá dúkkaði Georg bróðir upp ásamt yngri dóttur sinni. Ekki nóg með það, ég var nýbúin að vinna mig í gegnum hrúgu sem hafði safnast smátt og smátt fyrir á eldhúsborðinu og koma fyrir fallegum dúk og skálum á borðinu í staðinn. Merkilegt. Vissulega margt ógert hér á byggingasvæðinu, en þetta bara klikkar ekki! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sammála, það er svo notalegt þegar fólk kemur á hárréttum tíma í heimsókn. Fólk sem hittir alltaf á mann á útleið eða upptekið hlýtur að fyllast höfnunartilfinningu ... því bendi ég á að boða komu sína. Verst er þegar fólk kemur kannski klukkutíma of snemma (í afmælið mitt ... ég ofan í baðinu ... arggggg)! Það er eiginlega verri óstundvísi en sú að koma of seint, alla vega í sumum tilfellum.

Guðríður Haraldsdóttir, 31.5.2007 kl. 20:26

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hmmm, ég sagði aldrei að Georg væri stundvís, en hann er næmur, rosalega næmur á að hitta vel á! En annars er ég svo sannarlega sammála þér.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 31.5.2007 kl. 20:47

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband