Kaffi og landafræði - myndlistarsýningin mín á Café Rót

Í dag var ég að hengja upp fjórðu einkasýninguna mína á árinu, á Café Rót í Hafnarstræti. Á morgun milli kl. 14 og 16 verður þó aðeins þriðja opnunin mín því skvass- og tennismyndirnar mínar í Veggsporti eru aðeins óformlegri sýning en hinar. Síðustu fimmtán mánuði hef ég málað meira en alla ævina fram til þessa, það var eins og einhver stífla brysti þegar ég byrjaði aftur í september í fyrra. Þá hafði liðið óvenjulangt á milli þess að ég sinnti myndlistinni almennilega og greinilega cimg5461.jpgeitthvað sem safnast hafði upp og ekkert lát á því. Þessi sýning er með smá enduróm af fyrstu sýningunni minni í sumar, litlu kaffibollamyndirnar mínar halda áfram að fæðast. En hins vegar er meginþema sýningarinnar yfirstærð af aðeins leiðréttum landakortum. Hálfgerðar gátur. Það er gaman að hengja myndir upp á Café Rót, sem er flottur staður með alls konar húsgögnum og mjög dýnamísku mannlífi, þar hef ég rekist á byltingarsinna og broddborgara, farið á fundi en því miður ekki enn að dansa tangó eða Lindýhopp, því það kann ég hreinlega ekki. Mergjuð hljómsveit að æfa í morgun þegar ég var að hengja upp, því þarna er líka samastaður mjög framsækinna rokkhljómsveita. Sem sagt fjölbreytt umgjörð fyrir myndirnar mínar. Lýsingin er engin sýningarlýsing, en ég hef svo sannarlega gaman af því að glíma við umhverfið þarna, þetta er miklu líkara því sem gerist þegar myndirnar komast í eigu annarra en mín og á veggi alls konar íbúða. Sýningarhúsnæði er stundum einum of sterilt, þetta er það svo sannarlega ekki. omlidterkaffen.jpgEn sem sagt skrýtin landakort og kaffibollar fyrir alla á Café Rót í Hafnarstræti (húsið við hliðina á Rammagerðinni og ská á móti Heimssýnarskrifstofunni þar sem ég hef verið löngum stundum undanfarnar 5-6 vikur).Og þið eruð auðvitað öll velkomin á morgun milli 14 og 16 eða á öðrum tíma í desember, en sýningin er opin út mánuðinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband