Ökklabrotinn eiginmaður kominn heim

Gærdagurinn var eiginlega aðallega á slysó því eftir meira en 30 ára slysalausa hestamennsku tókst honum Ara mínum að slasa sig uppúr hádegi í gær og brotna illa á ökkla. Hann fór í aðgerð í gærkvöldi og var negldur í bak og fyrir og hent út af spítalanum í dag. Kominn heim og skyldugur til þess að vera stilltur í nokkra daga alla vega. Ósköp gott að fá hann heim, annars var frekar mikið fjör hjá okkur um miðnæturskeið í gærkvöldi á spítalanum, þegar Trausti vinur okkar bættist í heimsókn, en hann er öryggisvörður niðri við dyr og var á vakt þegar hann frétti af Ara. Pólverjinn í næsta rúmi náði samt að sofna, frekar illa kvalinn af sígarettuskorti (en snjallt að eiga nikótínplástra á spítalanum) og svo var hann líka þjáður eftir eitthvert slys. Alla vega þá tókst aðgerðin á Ara vel etir því sem næst verður komist og allir á spítalanum ósköp notalegir, sem er gott þegar svona lagað kemur uppá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Hestar eru sem sagt skaðræðisskepnur  Vonandi líður karlinum bærilega - eru þetta ekki 6 vikur í gipsi og annað eins í endurhæfingu  Þú náttlega bara í hjúkkinu með hann á meðan

, 29.12.2008 kl. 17:07

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilegar batakveðjur til Ara sem er greinilega sami "hrakfallabálkurinn" og ég. Ég var ekkert smá móðguð þegar einhver sagði það við mig þegar ég datt og fékk gat á hnéð um árið, síðast saumuð saman 40 árum fyrr, það kalla ég ekki að vera hrakfallabálkur.

Knús í bæinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 29.12.2008 kl. 17:08

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Í höndunum á Ara eru hestar yfirleitt mjög þægir og meðfærilegir en upp kom ágreiningur milli hests og manns um í hvaða átt skyldi halda. Hins vegar þekki ég þetta vesen, hryggbrotnaði seinast þegar ég fór á bak (eða svoleiðis). Skila batakveðjum til Ara og það á ábyggilega eftir að hressa hann við að hafa nóg af góðum bókum að lesa, hann spænir bækur í sig af miklum móð þegar hann er í afslöppun, sem reyndar er ekki alveg brostin á.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.12.2008 kl. 18:44

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson


Og ef mér tekst að halda honum í húsi, hann er kominn með forláta hækur sem Elísabet systir mín lagði til, þá ætla ég svo sannarlega að dekra hann.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.12.2008 kl. 18:46

5 Smámynd: Aprílrós

Ágreiningur endar alltaf illa það sýndi sig greinilega í gær hjá Atla.

Góðar baráttu og batakveðjur til Atla.

Og þú stendur örugglega vel í hjúkrunar og dekur hlutverkinu. ;)

Hann heppin að eiga þig að ;)

Aprílrós, 29.12.2008 kl. 19:36

6 identicon

Þetta eru dapurlegar fréttar og vonandi verður ökklinn jafngóður og áður. Ekkert grín að vera haltur.

En af því að ég er nú ekki alveg laus við að vera háðsk (svona stundum)  finnst frúnni það þá ekki bara ágætistilhugsun að hafa eiginmanninn á heimilinu næstu vikurnar? Hann getur endurnýjað "myndasafnið"! Nei, segi svona.  

Muna svo að þegar hestur veit hvað hann vill þá veit hann hvað hann vill! Bara hlýða! Hafði ekki hesturinn örugglega rétt fyrir sér um hvor leiðin var betri?

Helga 29.12.2008 kl. 20:40

7 Smámynd: Vilborg G. Hansen

Æji þetta var leiðinlegt að heyra.  Koss, knús og batakveðjur til frænda og vonandi að hann nái sér sem fyrst og verði þægur í bataferlinu

Vilborg G. Hansen, 30.12.2008 kl. 09:25

8 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það er bara fínt að hafa Ara heima á meðan hann endist, en Vilborg hefur rétt fyrir sér varðandi frænda sinn að það er alltaf spurning um að hann verði þægur í bataferlinu, það væri alla vega kostur.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.12.2008 kl. 10:51

9 Smámynd: Ólafur Sigurðsson

Þetta er vont, og það versnar. Beinin eru öðruvísi en allt annað og ökklin með verri meiðslum. Verst svo þegar maður vill ekkert vera að standa í svona veikindaferli. Já, vont og svo versnar það.

Man sjálfur eftir mér skríðandi upp stiga á einum fæti og öðru hné eftir smáslys á ökkla. Maður sleppur ekki verki meðan báðir fætur eru jafnlangir, og maður sjálfur ætíð jafnvitlaus .... og fyrri daginn. Nehei.

gangi bara vel, æi, ég meina góðan bata.

Ólafur Sigurðsson, 4.1.2009 kl. 03:25

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband