Nafna hafði ekkert smá rétt fyrir sér með David Cook

Nafna mín á Akureyri benti mér á að hlusta á David Cook syngja Billy Jean í mjög sérstakri útsetningu á blogginu sínu. Þetta er góða hliðin á American Idol, sumt er enn sem fyrr leiðinlegt. Hún hafði sko meira en rétt fyrir sér, það er varla hægt annað en halda með þessum náunga eftir að hafa séð þetta lag.

Hér er hægt að hlusta og horfa á þennan flutning, njótið vel:

 



Og hér er sá sem féll út, að flytja það sem mér fannst hans besti árangur (afsakið kjaftæðið framan af, gott að renna inn í svona 1/3 af laginu). Ef þið smellið bara á annað lagið, þá skulið þið velja það efra (Michael Jackson hvað!!!???)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

David Cook gaf mér gæsahúð upp á helling.

Langflottastur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 22:46

2 identicon

Já, ég kolféll fyrir honum. Mér finnst strákarnir betri í þessum hópi heldur en stelpurnar en það er svo skrýtið að þetta skiptist svona milli ára, studnum hafa stelpurnar haft vinninginn, nú eru það strákarnir.

Anna Ólafsdóttir (anno) 1.4.2008 kl. 01:46

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sammála þessu með strákana þetta árið, en þegar Fantasia vann voru það eiginlega bara stelpurnar sem rokkuðu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.4.2008 kl. 01:50

4 identicon

Já, einmitt, það var stelpnaár.

Anna Ólafsdóttir (anno) 1.4.2008 kl. 10:57

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband