Hvernig í ósköpunum getur áhugi á anarkisma gengið í ættir?

Ykkur finnst þetta kannski ekki jólaleg umræða, en hún á sér skýringar. Í dag barst mér í hendur bók sem ég hef leitað að í rúmt ár, gersamlega ófáanleg, um anarkisma. Hún er eftir frænda minn, George Crowder. Það er aðeins liðlega ár síðan ég frétti af þessari bók, ég hef nefnilega aldrei séð George eða heyrt, þótt amma mín og mamma hans séu systur. Hann er fæddur á Nýja Sjálandi (eða Suður-Afríku, man ekki hvar Bubba frænka bjó árið 1955) en ég hér heima á Íslandi. Ég þekki bróður hans, Brian og syni hans, en hef aldrei hitt George og frétti af tilviljum af því að hann hefði bæði skrifað doktorsirtgerð og bók um anarkisma, einkum klassískan. En ég skrifaði mína B.A. ritgerð um einn af klassísku anarkistunum, Kropotkin, og gerði síðan þáttaröð fyrir ríkisútvarpið fyrir nokkrum árum sem ég kallaði: Þættir úr sögu anarkismans, þar sem ég rakti anarkismann og sögu hans, nokkurn veginn sama tímabil og George fjallar um í sinni bók. Þannig að ég hlýt að spyrja: Getur áhugi á anarkisma gengið í erfðir, alla vega var það ekkert í umhverfi okkar sem leiddi okkur á sömu braut, mér vitanlega.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég kemst að því að manneskja, mér mjög nákomin, er að gera nokkurn veginn nákvæmlega sömu hluti og ég þótt ekkert samband sé á milli. Hitt dæmið er lengra mál og jafnvel enn persónulegra, og hin ættin mín reyndar. Ég trúi alveg á tilviljanir, en það eru samt takmörk fyrir því hvað ég er auðtrúa á svona einkennilegar tilviljanir. Það er ekki eins og allir í heiminum séu að velta fyrir sér anarkisma, og enn færri voru þeir þegar við George lukum við okkar misstóru ritgerðir, ég 1978 og hann 1987. Í formála hans fjallar hann um tvennt, annars vegar hve illa gengur að fá kenningar anarkista ræddar sem ,,alvöru" stjórnmálakenningar og hins vegar um fordóma gagnvart anarkisma, það er að líta á anarkisma sem friðsæla stjórnmálakenningu en ekki eingöngu í ljósi voðaverka sem framin voru í hans nafni á árunum 1880-1910. Nokkurn veginn það sem ég fann fyrir þegar ég skrifaði mína ritgerð og eflaust hefur það litað þættina mína. En ég er farin að svindla aðeins á jólabókalestrinum og byrjuð að lesa það sem George skrifaði og hlakka til að klára þá bók. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Getur ekki verið að langamma þín hafi verið anarkisti?!! Hvaða ár voru þessir þættir í útvarpinu? Langar til að hlusta á þá. Gleðileg jól.

María Kristjánsdóttir, 23.12.2007 kl. 09:00

2 Smámynd: Linda litla

Já þegar maður hugsar út í það, það er þetta a.m.k. furðuleg tilviljun. En samt eitthvað út í hött að áhuginn sé ættgengur, það væri kannski eðlilegt ef að þið væruð í einhverju sambandi og rædduð málin um anarkisma.

Linda litla, 23.12.2007 kl. 09:12

3 identicon

Finnum betri tíma til að tala um anarkisma. Þessa dagana trúi ég helst á jólasveinana, mömmu þeirra og pabba (opps, sennilega á maður að trúa á e-n annan akkúrat núna) . Hvað um það. Bestu kveðjur til ykkar með ósk um gleðileg jól. Sjáumst fljótlega á nýju ári.

Helga 23.12.2007 kl. 10:12

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Langamma átti tvö börn sem hún þurfti að gefa frá sér þegar fyrri eiginmaðurinn dó. Annað þeirra var amma. Hún stofnaði nýja fjölskyldu og fluttist austur á land og eignaðist þar fullt af börnum, var gift kennara, ég man hana bara sem konu á peysufötum en það getur leynst anarkisti á óvæntum stöðum. Þættirnir voru á dagskrá líklega veturinn 1998-1989.

Einhvern tíma mun ég eflaust ná að kynnast George frænda mínum, alla vega er áhuginn fyrir hendi þótt hann búi í Eyjaálfu suður í höfum og ég á þessari litlu eyju hér norður frá.  

Helga, við munum ábyggilega hittast fljótlega á nýju ári, við hér tökum sjálf að okkur að vera jólasveinar og þvælumst um í dugnaðarkasti, sem þó dugar hvergi nærri til enn að fleyta okkur gegnum jólatiltektina (því auðvitað erum við að klára að leggja parkettið á margflotaða gólfið uppi).

Gleðileg jól! 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.12.2007 kl. 14:16

5 Smámynd: halkatla

vá þetta er amk skemmtileg tilviljun! sem betur fer gekk áhugi á einkaframtakinu, sjálfstæðisflokknum og framsókn ekki í erfðir í mínu tilfelli

halkatla, 23.12.2007 kl. 16:18

6 Smámynd: Sigurður Hólmar Karlsson

Gleðileg jól.

Sigurður Hólmar Karlsson, 23.12.2007 kl. 22:06

7 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Gleðileg jól

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 23.12.2007 kl. 23:28

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband