Gat ekki klikkað!

Óska þessum skemmtilegu sveitungum mínum til hamingju með sigurinn í Útsvari í kvöld. Hafði tröllatrú á þeim og svo til vara er ég alltaf mjög svag fyrir Borgnesingum, enda miklar tengingar þangað hjá fjölskyldunni, svo það hefði meira að segja verið hægt að samgleðjast þeim. En þetta gat ekki klikkað eftir að meira að segja Jessica Alba var farin að afla stiga fyrir Álftanes. Næsti þáttur Álftnesinga verður auðvitað mjög furðulegur, það er eins og einhver sé að þjófstarta sameiningu Álftaness og Garðabæjar, sem mjög skiptar skoðanir eru um í báðum bæjarfélögunum.
mbl.is Álftanes lagði Borgarbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband