Ólesnar spennusögur – Kindle og pappír

Ţađ er fátt sem gerir mig órólega og mér leiđist sjaldan, ef nokkrun tíma. En hins vegar verđ ég ađ játa ađ ég finn fyrir smá ókyrrđ og öryggisleysi er ég á ekki alla vega 2-3 ólesnar spennusögur innan seilingar. Fátt tćmir hugann eins vel og ađ lesa spennusögu fyrir svefninn og svo ţjónar ţessi iđja einnig ţví hlutverki ađ ýta gáfulegum hugsunum og geggjuđum hugmyndum á brott, en ţađ er auđvitađ valkvćtt hvađ hver og einn vill gera viđ svoleiđis lagađ. Einstaka sinnum tek ég óskrifuđu minnisbókina framyfir spennusöguna á náttborđinu og krota hjá mér allar ţessar hugsanir og hugmyndir. Ţađ má stundum mođa úr ţví ađ morgni.

bokastafli.jpg

 

Engu ađ síđur er alveg nauđsynlegt ađ eiga svona slökkviliđ viđ hendina og geta svćft allt hugarflug međ góđri spennu fyrir svefninn. Um helgar má svo stundum grípa í bókina líka í vakningaferlinu, sofna aftur eđa detta inn í spennuna sem góđ spennusaga ţarf ađ bjóđa upp á og lesa sér til óbóta.

 

Nú er ég búin ađ baktryggja mig. Hlađa niđur ókeypis forriti á tölvuna mína sem gerir ađ sumu leyti sama gagn og hiđ allt of dýra Kindle-lestól, ađ ég tali nú ekki um iPad-inn sem er enn dýrari. Hvort tveggja of dýrt til ţess ađ ég hafi ţurft ađ taka hina afdrifaríku ákvörđun um hvort henti mér betur. En nú get ég keypt og átt í tölvunni minni varasafn af spennusögum, ţannig ađ strangt til tekiđ ţá ţarf ég aldrei ađ verđa uppiskroppa međ spennusögur fyrir svefninn. Til ţess hefur ekki komiđ enn, en óneitanlega er ţessi kostur betri en sá ađ renna út í Hagkaup (opin allan sólarhringinn í GB og Skeifunni) međ stýrurnar í augunum eftir nýrri spennusögu. Ţađ hef ég heldur ekki gert, en allur er varinn góđur, er ţađ ekki?

 

Kindle Wireless Reading Device (6


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband