Golf fyrir óinnvígđa

Í nokkur ár hef ég reynt ađ venja mig á golf. Minnug ţess ađ á landinu eru tennisvellir ekki víđa og tennisiđkun útheimtir ađ hafa mótspilara tiltćkan á réttum tímum, ţá vissi ég ađ ef mér tćkist ađ venja mig á golf, ţá hefđi ég ađ einhverju ađ keppa ţegar ég vćri ađ njóta útiverunnar og oft á tíđum einnig veđurblíđunnar. Vissulega átti ég góđ tennisár, einkum fyrstu árin sem ég ánetjađist ţeirri íţrótt, en svo fór ađ koma misgengi milli ađgangi ađ mótspilurum (á réttum tímum), góđviđrisdaga og annarra ţátta sem skiptu máli. Auk ţess fer illa saman ađ spila skvass og tennis, of líkar íţróttir sem krefjast of ólíkrar tćkni. Svo úr ţessum lúxus dró um sinn alla vega.

Og ţá fór ég ađ reyna ađ venja mig á golf. Ţađ gekk vćgast sagt brösuglega (vona ađ g-iđ sé leyft í ţessu orđi, mér gengur illa ađ sćtta mig viđ stafsetninguna brösulega, sem ég held ađ sé ögn algengari). En alla vega, međ einbeittum ásetningi er mér ađ takast ađ venja mig á ţessa ágćtu íţrótt og búin ađ uppgötva ađ spiliđ skánar ekki nema mađur sinni ţessu eitthvađ meira en 5 sinnum á sumri, sem er mitt fyrra met (og ţá er ég ekki ađ tala um 5 heila golfhringi). Ég á eflaust langt í land ađ verđa innvígđ í ţennan heim sem ég hélt eitt sinn ađ vćri bara fyrir eldgamalt fólk, pabbi var áreiđanlega á fertugsaldri ţegar ég sá hann vera ađ spila :-) og Sverrir lögga á annarri hćđinni, sem notađi glas og teppiđ heima til ađ ćfa pútt var ábyggilega eldri en hann. Núna er ekki ţverfótađ fyrir unglingum á litla vellinum ţar sem ég ćfi mig, svo ég er međ eldri iđkendum. Vonandi ađ ég ánetjist ţessari íţrótt af einhverjum viti. 

golf.jpg

 

Ţví miđur er ekki bođiđ upp á svona holur, eins og ég fann ţegar ég googlađi konur, skrípó og golf. Ţá vćri ég farin ađ ćfa holu í höggi.

Í dagmunađi litlu ađ ég ćtti völlinn ein. Allt í einu voru allir ađ hverfa af vellinum - og ţá allt í einu mundi ég ađ ég ćtlađi líka ađ horfa á úrslitaleikinn. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband